Tónlist

Bæta höfundum við Uptown Funk í skugga Blurred Lines-dómsins

Birgir Olgeirsson skrifar
Bruno Mars og félagar flytja lagið Uptown Funk sem er að finna á plötu breska tónlistarmannsins Mark Ronson sem nefnist Uptown Special.
Bruno Mars og félagar flytja lagið Uptown Funk sem er að finna á plötu breska tónlistarmannsins Mark Ronson sem nefnist Uptown Special. Vísir/YouTube
Fimm tónlistarmenn hafa bæst í höfundateymi risasmellsins UptownFunk rúmu hálfu ári eftir að það kom út. Lagið er af fjórðu hljóðversplötu breska tónlistarmannsins Mark Ronson sem nefnist UptownSpecial og fékk hann bandaríska tónlistarmanninn Bruno Mars til að flytja það.

Nú hefur útgáfufyrirtækið RCARecords bætt höfundum lagsins OopsUpsideYourHead, sem hljómsveitin The Gap Band gerði vinsælt árið 1979, í höfundateymið á bak við UptownFunk. Útgáfufyrirtæki The Gap Band hafði haldið því fram að líkindi væru á milli UptownFunk og lagsins frá árinu 1979.

Þeir sem bættust við höfundateymið eru Charlie Wilson, Robert Wilson, Ronnie Wilson, RudolphTaylor og LonnieSimmons. Þeir fá nú hlutdeild í tekjum lagsins sem státar nú af ellefu manna höfundateymi en fyrir voru þeir Ronson, Mars, JeffreyBhasker, PhillipLawrence, Nicholas Williams og Devon Gampsey skráði fyrir laginu.

Þessi ákvörðun RCARecords kemur eftir að dómur féll í Blurred Lines-málinu þar sem höfundar lagsins, Pharrell Williams og RobinThicke, voru dæmdir til að greiða erfingjum Marvin Gaye skaðabætur fyrir að hafa stolið „grúvi úr lagi Gayes, Gotta GiveItUp.

Þá náðu tónlistarmennirnir SamSmith og Tom Petty samkomulagi um að Petty yrði skráðu fyrir lagi Smiths, StayWith Me, vegna líkinda þess við lagið IWon´tBackDown.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×