Viðskipti innlent

Bændum boðið tvöfalt verð í Norðlenska

Sveinn Arnarson skrifar
Kauptilboðið stendur til 21. maí og munu bændur þurfa að taka afstöðu innan þess tíma.
Kauptilboðið stendur til 21. maí og munu bændur þurfa að taka afstöðu innan þess tíma.
Kjötvinnslufyrirtækið Kjarnafæði á Svalbarðseyri býður 750 milljónir króna í kjötvinnslufyrirtækið Norðlenska, auk yfirtöku skulda. Þetta herma heimildir Markaðarins. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum sendi Kjarnafæði Búsæld ehf., eiganda Norðlenska, kauptilboð á dögunum í allt hlutafé félagsins.

Norðlenska er samvinnufélag í eigu þeirra bænda sem leggja inn gripi til slátrunar. Bregði þeir búi er hlutur þeirra keyptur á genginu 1. Samkvæmt heimildum bauð Kjarnafæði í allt hlutafé á genginu 2,0 svo um er að ræða tvöfalt hærra verð til bænda.

Óskar Gunnarsson, formaður stjórnar Búsældar ehf., segir tilboðið í skoðun innan félagsins og afstaða verður tekin til tilboðs Kjarnafæðis fyrir 21. maí næstkomandi. Samkvæmt heimildum er óeining innan stjórnarinnar um kauptilboðið. „Viðræður eru á byrjunarstigi. Við erum að skoða þetta kauptilboð innan stjórnarinnar og ég geri fastlega ráð fyrir því að við munum boða til hluthafafundar þar sem afstaða verður tekin til kauptilboðsins. Ég get ekki tjáð mig um upphæðir í þessu samhengi enda er það trúnaðarmál á þessu stigi málsins,“ segir Óskar.

Einkahlutafélag tengt Kjarnafæði hefur í nokkurn tíma átt fasteignir Norðlenska á Akureyri og hafa umræður um sameiningu félaganna staðið yfir með hléum frá árinu 2008. Norðlenska og Kjarnafæði eru bæði stórir aðilar í kjötvinnslu á Íslandi. Rekstur fyrirtækjanna hefur verið þungur síðustu ár. Norðlenska tapaði um 50 milljónum á síðasta ári og Kjarnafæði tapaði einnig um 40 milljónum. Kauptilboðið er liður í því að ná hagræði í rekstri fyrirtækjanna til þess að vera samkeppnishæfir í verði á kjötafurðum innanlands.

Velta Norðlenska var rúmir 5 milljarðar á síðasta rekstrarári og rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir nam 147 milljónum króna. 50 milljóna króna tap varð hins vegar á rekstrinum á móti 140 milljóna króna hagnaði á árinu 2013. Aðstæður á markaði í framleiðslu kjötafurða voru erfiðar í fyrra. Gunnlaugur Eiðsson, framkvæmdastjóri Kjarnafæðis, segir markmiðið með tilboðinu að ná fram hagræðingu innan greinarinnar. Hún sé mikilvæg svo hægt sé að sækja fram. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×