Innlent

Bændasamtökin ætla ekki að selja Hótel Sögu

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Tilboðin í Hótel Sögu ekki nægilega hagstæð segja Bændasamtökin.
Tilboðin í Hótel Sögu ekki nægilega hagstæð segja Bændasamtökin. vísir/vilhelm
Bændasamtökin hafa ákveðið að ganga ekki til viðræðna um sölu á Hóteli Sögu. Það er mat stjórnar Bændasamtakanna að hagstæðara sé að halda áfram góðum rekstri hótelsins fremur en að ganga að fyrirliggjandi tilboðum. Ákvörðunin var tekin á grundvelli fyrirliggjandi tilboða sem fram komu í söluferli sem fyrirtækjaráðgjöf MP banka annaðist. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bændasamtökunum.

Söluferlið hófst 19.nóvember og var þá óskað eftir formlegum tilboðum í kaup á fasteign og rekstri Hótels Sögu. Ákveðið var að fara í þetta ferli eftir að fjöldi fyrirspurna hafði borist um kaup á hótelinu. Frestur til að gera óskuldbindandi tilboð var gefinn til 12.desember og bárust alls sex tilboð. Fjórir lögði í kjölfarið fram skuldbindandi tilboð en var það mat stjórnarinnar að ekkert tilboðanna hafi verið nægilega hagstætt.

„Okkar markmið er að ávaxta eignir samtakanna með sem bestum hætti. Þegar við lögðum mat á fyrirliggjandi tilboð komumst við að þeirri niðurstöðu að á þessum tímapunkti þjónaði áframhaldandi rekstur hótelsins betur því markmiði. Það hefur verið mikil gróska í ferðaþjónustu á Íslandi undanfarin misseri. Næstu skref hjá okkur eru að hefja vinnu við endurbætur á hótelinu til að tryggja að Hótel Saga hafi áfram þann virðulega sess sem það hefur ávallt haft í hugum Íslendinga,“ segir Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands.


Tengdar fréttir

Hótel Saga sett á sölu

Á síðustu mánuðum hafa margir fjárfestar haft samband við Bændasamtök Íslands og lýst yfir áhuga á að kaupa fasteign og rekstur Hótel Sögu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×