Lífið

Bækur og bolti í eina sæng

Bryndís Loftsdóttir, starfsmaður Félags íslenskra bókaútgefenda, segir íþróttaandann svífa yfir vötnum á markaðnum.
Bryndís Loftsdóttir, starfsmaður Félags íslenskra bókaútgefenda, segir íþróttaandann svífa yfir vötnum á markaðnum. vísir/gva
Bókamarkaðurinn er til húsa í stúkunni á Laugardalsvelli annað árið í röð. Áður var hann til húsa í Perlunni en bókaútgefendum líður betur í ferhyrndu húsnæði.

„Bækur eru ferhyrndar og röðuðust illa í hringlaga Perluhúsi,“ segir Bryndís Loftsdóttir, starfsmaður Félags íslenskra bókaútgefenda. „Svo er hér íþróttaandi yfir. Salurinn er áttatíu metrar á lengd þannig að það má segja að þegar fólk kemur á bókamarkaðinn sé það að skila daglegri líkamsrækt í leiðinni.“

Í ár er lögð sérstök áhersla á barna- og ungmennabækur auk fræðibóka.

„Barnabækur hafa aldrei áður fengið svona mikið pláss. Það er ánægjulegt. Svo fylla fræðibækurnar heilan gang, svokallaðan menntaveg. Á þeim gangi stoppar fólk lengi og gluggar í fræðin,“ segir Bryndís og bætir við að einnig verði tvær fornbókaverslanir reknar á svæðinu. 



Bókaútgefendur eru sannfærðir um að samvinnan verði gæfusöm fyrir bæði útgefendur jafnt og íslensku fótboltalandsliðin.

„Við erum til húsa í nýju stúkunni við Laugardalsvöllinn – við þjóðarleikvang Íslendinga. Laugardalurinn er frístundamiðja höfuðborgarsvæðisins og frábær viðbót að fólk geti nært andann á bókamarkaði þegar það á leið um dalinn,“ segir Bryndís.

Markaðurinn verður opinn alla daga kl. 10-18 til 15. mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×