Lífið

Bæjarstjórinn skemmti sér með upptökustjóra Foo Fighters

Aldís Hafsteinsdóttir, bæjastjóri í Hveragerði, sótti stjörnuprýtt brúðkaup sem fram fór í bænum um síðustu helgi. Á meðal gesta voru trommuleikari Garbage, Butch Vig, meðlimir hljómsveitarinnar Underground og sjónvarpsmaðurinn Chris Packham.
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjastjóri í Hveragerði, sótti stjörnuprýtt brúðkaup sem fram fór í bænum um síðustu helgi. Á meðal gesta voru trommuleikari Garbage, Butch Vig, meðlimir hljómsveitarinnar Underground og sjónvarpsmaðurinn Chris Packham.
Stjörnum prýtt brúðkaup fór fram í Hveragerði um síðustu helgi og var Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, á meðal viðstaddra. Foreldrar körfuknattleiksmannsins Louie Kirkman létu pússa sig saman og á meðal gesta var Butch Vig, trommuleikari hljómsveitarinnar Garbage, meðlimir írsku sveitarinnar Undertones og sjónvarpsmaðurinn Chris Packham.

„Louie hefur spilað körfubolta með Hamri undanfarinn vetur og foreldrar hans hafa heimsótt hann nokkrum sinnum og heilluðust svo af staðnum að þau ákváðu að láta pússa sig saman í Strandakirkju við hátíðlega athöfn. Maðurinn minn, Lárus Friðfinnsson, er formaður Hamars og þannig kynntumst við brúðhjónunum,“ útskýrir Aldís. „Í veislunni slógu vinir hjónanna upp bandi og líklegt er að sjaldan eða aldrei hafi betri tónlistarmenn stigið á stokk hér í Hveragerði,“ bætir hún við, en Vig þessi hefur meðal annars unnið sem upptökustjóri Nirvana, Foo Fighters og Smashing Pumpkins og veislustjórinn Packham hlaut BAFTA-verðlaunin fyrir þátt sinn The Really Wild Show. Írska pönksveitin Undertones er líklega þekktust fyrir lag sitt Teenage Kicks.

Að sögn Aldísar vissi hún ekki hvaða fólk þetta var fyrr en í lok veislunnar og hafði hún þá aldrei heyrt um Undertones áður en kannaðist eitthvað við Garbage. „Ég hafði ekki hugmynd um að þetta fólk væri þekkt og ég held að fæstir hafi gert það.“

Eiginmaður Aldísar var einnig dreginn upp á svið með tónlistarmönnunum og sýndi að hennar sögn snilldartakta á kúabjöllu og uppskar mikið lófaklapp viðstaddra.

- sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×