Innlent

Bæjarstjórinn lætur Baltasar svara fyrir sig

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vísir/Pjetur
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, lætur Baltasar Kormák um að svara fyrir gagnrýni Inga Freys Vilhjálmssonar, fréttastjóra DV.

„Þegar Elliði Vignisson talar um Vestmannaeyjar mætti ætla að hann væri borgarstjóri í milljónaborg eða jafnvel forseti heimsveldis. Vestmannaeyjar verða að miðju alheimsins í munni Elliða,“ segir Ingi Freyr í pistli sínum.

Nákvæmlega ekkert sérstakt sé við Vestmannaeyjar nema kannski hinn fáránlegi heimahagarembingur og stolt sem birtist í augum bæjarstjóran. Auk þess sprang, Pollamót og Þjóðhátíð.

„Vestmannaeyjar eru menningarlegt núll að því leyti að það er ekkert sem aðgreinir menningu þeirra frá öðrum sjávarplássum víðs vegar um landið. Hvaðan kemur þessi rembingur og þetta útbelgda stolt Eyjamanna eins og Elliða, misskilningurinn um sérstöðu og æðra vægi? Þetta er bara eitt bæjarfélag af mörgum á Íslandi þar sem fiskur er veiddur og veiddur vel; Eyjamenn eiga nokkur stór útgerðarfyrirtæki sem hagnast yfirleitt ríflega og geta greitt mikla skatta og starfsmönnum sínum há laun. Það er flott: Eyjamenn eru duglegir; Vestmannaeyjar eru traustur hluti af íslenska efnahagskerfinu og bæjarfélagið leggur sitt af mörkum til samfélagsins, ríkisins Íslands. Enginn tekur það frá þeim: Þeir fiska vel - Eyjar eru ein af verstöðvum Íslands.“

Baltasar Kormákur.
Elliði slær á létta strengi í svari sínu, segist telja að fréttastjórinn sé fínn peyi.

„Ég þekki ekki fréttastjórann. Held að hann sé fínn peyji. Þess vegna finn ég til með honum að fara svona villu vegar. Auðvitað eru Vestmannaeyjar sérstakar. Hvorki betri né verri en aðrir sambærilegir staðir, en sérstakar. Á sama hátt þykir mér Eyjamenn sérstakir. Hvorki betri né verri en aðrir, en sérstakir,“ segir í pistli Elliða.

Bæjarstjórinn segir að fyrst orð sín megi sín lítils, hann sé „bara“ af landsbyggðinni og ætti sjálfsagt að vera að veiða fisk, láti hann Baltasar Kormák um orðið. Hann hafi raunar svarað fullyrðingum Inga Freys löngu áður en pistillinn var skrifaður. Það gerði hann við móttöku Edduverðlauna sem leikstjóri ársins.

„Fyrst og fremst langar mig að senda Vestmannaeyingum kveðju. Það var frábært að gera þessa mynd. Höfðingsskapur, gestristni og það er eitthvað sérstakt í kakter Vestmannaeyinga sem að hrífur mig alveg rosalega. Þetta er eins og Íslendingur sem hefur verið tálgaður, það er bara það besta eftir hjá honum."

Lýkur pistli Elliða á vangaveltum hvort Ingi Freyr telji Baltasar til einnig til vanvita.

„Hann dvelur jú löngum stundum á heimili þeirra hjóna á Hofi í Skagafirði og því með öllu óvíst að fréttastjórinn telji hann marktækan í umræðu um landsbyggðina.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×