Innlent

Bæjarstjóri Snæfellsbæjar: Fullt tilefni til aðgerða lögreglu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ólafsvík er hluti af Snæfellsbæ
Ólafsvík er hluti af Snæfellsbæ Vísir/Pjetur Sigurðsson
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, telur að fullt tilefni hafi verið til aðgerða lögreglu á raftónlistarhátíðinni Extreme Chill Festival sem fram fór á Snæfellsnesi um sl. helgi. Um 30 fíkniefnamál komu upp á meðal 200 gesta hátíðarinnar en aðstandendur hátíðarinnar saka lögregluna um að hafa haldið gestum í heljargreipum.

„Ef þú horfir til þess að það hafi verið 200 einstaklingar sem hafi verið hér og á milli 20-30 fíkniefnamál þá hlýtur að hafa verið tilefni til þess að gera eitthvað,“ sagði Kristinn í samtali við blaðamann Vísis. Starfsmenn bæjarins hafi t.d. fundið fjóra fíkniefnaskammta við tiltekt eftir hátíðina.

Hátíðin hefur verið haldin í sveitarfélaginu frá árinu 2009 og að mestu án vandræða þangað til í ár að sögn Kristins sem gegnt hefur starfi bæjarstjóra í Snæfellsbæ sl. sautján ár.

„Hingað til hefur lögreglan ekki haft mikil afskipti af þessari hátíð. Það hafa aldrei verið nein vandræði á borð við hópslagsmál eða nauðganir eða neitt slíkt. Það hafa allir bara verið í góðum fíling ef það má orða það þannig. Íbúar hafa reyndar séð það á gestunum að sumir hafa verið í annarlegu ástandi en þeir hafa algjörlega verið til friðs.“

Sjá einnig: Extreme Chill Festival - Aðsúgur gerður að lögreglu eða gestum haldið í heljargreipum?

Kristinn Jónasson er bæjarstjóri Snæfellsbæjar.
Kristinn undrast umræðuna sem skapast hefur í kjölfarið en aðstandendur hátíðarinnar hafa í hyggju að leita réttar síns vegna aðgerða lögreglunnar.

„Þetta er spurningin um hvort að lögreglan eigi að skipta sér af fíkniefnamálum og ef svo er, hvað er þá að því að hún fari í vinnuna sína hafi hún rökstuddan grun um slíkt? Það hefur aldrei verið neitt vesen, ekkert yfir þessu fólki að kvarta en ef að fólk er að neyta ólöglegra fíkniefna er þá réttlætanlegt að lögreglan geri ekkert í því?“

Kristinn er sjálfur ánægður með vakt lögreglunnar í Snæfellsbæ um sl. helgi og hafa íbúar bæjarins komið að máli við hann og tekið undir þessa ánægju.

„Meðan þetta er ólöglegt og lögreglan vinnur sína vinnu get ég ekki verið annað en sáttur. Íbúarnir hafa komið til mín í vikunni og sagst vera afskaplega ánægðir með að lögreglan hafi verið svona vel vakandi.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×