Innlent

Bæjarstjóri hefur fulla samúð með leigjendum: Hækkun á leiguverði ekki í samræmi við íbúðaverð

Birgir Olgeirsson skrifar
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
„Ég skil það mjög vel að menn hafi áhyggjur af því ef leigan er að hækka svona mikið í einum umgangi. Ég hef fulla samúð með því,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, vegna þeirrar stöðu sem er komin upp í Reykjanesbæ. Fjölmargir íbúar sveitarfélagsins fengu bréf í póstinum í vikunni þar sem þeim var tilkynnt að innan nokkurra daga, þann 1. júlí, myndi leiguverð hækka um tugi þúsunda.

Forsaga málsins er sú að leigufélagið Tjarnarverk keypti tæplega níutíu íbúðir í Reykjanesbæ af Íbúðalánasjóði í maí síðastliðnum. Leigjendur fengu tilkynningu þess efnis bréfleiðis þar sem fram kom að Tjarnarverk tæki yfir réttindi og skyldur og um leið að innheimta leigu. Um er að ræða íbúa í Keflavík, Innri-Njarðvík og Vogum.

Vísir sagði frá drögum að nýjum samningi sem Valgerður Kristjánsdóttir, íbúi í Innri Njarðvík, fékk afhent frá Tjarnarverki. Í tilfelli Valgerðar hækkaði leiguverð úr rúmlega 142 þúsundum króna í rúmlega 197 þúsund krónur eða um tæplega 40 prósent.

Kjartan Már bæjarstjóri segir íbúðaverð á Suðurnesjum fara hækkandi og þá hljóti leiguverð að fylgja með. Þessi hækkun sem Tjarnarverk boðar sé þó ekki í neinu samræmi við það.

Hann segir Reykjanesbæ ekki eiga eftir að hlutast til vegna þessa máls. „Reykjanesbær er enginn aðili að þessu máli þannig að við munum ekki gera það.“


Tengdar fréttir

„Það er verið að flæma okkur í burtu“

Fjölmargir íbúar í Reykjanesbæ fengu bréf í póstinum í vikunni. Þar var þeim tilkynnt að innan nokkurra daga, þann 1. júlí, myndi leiguverð hækka um tugi þúsunda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×