Innlent

Bæjarskrifstofur Kópavogs flytji í Nýja Norðurturninn

ingvar haraldsson skrifar
Hingað gætu bæjarskrifstofur Kópavogs flutt fáist samþykki í bæjarstjórn og viðræður við eigendur húsnæðisins ganga eftir.
Hingað gætu bæjarskrifstofur Kópavogs flutt fáist samþykki í bæjarstjórn og viðræður við eigendur húsnæðisins ganga eftir. vísir/valli
Kópavogsbær hefur hug á því að flytja bæjar­skrifstofur Kópavogs frá Fannborg og í hinn Nýja-Norðurturn við Smáralind gangi samningaviðræður við eigendur turnsins eftir.

Bæjarstjórn Kópavogs mun taka fyrir tillögu um að Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra verði veitt leyfi til samninga um kaup á þremur hæðum, sem alls eru 3.489 fermetrar, í Nýja-Norðurturninum á næsta fundi sínum á þriðjudag. Jafnframt því verði veitt heimild til að gefa út skuldabréf að nafnvirði 1,5 milljarðar króna til 25 ára.

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum í gær að vísa tillögunni til bæjarstjórnar með öllum greiddum atkvæðum.

Karen E. Halldórsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn.
Samhliða kaupum á nýju húsnæði er stefnt að því að selja núverandi bæjarskrifstofur Kópavogsbæjar í Fannborg sem eru sagðar í mjög slæmu ásigkomulagi. „Nú síðast í vetur sprungu lagnir og lak vatn og það blæs inn köldu vatni á starfsmennina sem eru því miður að fara allt of oft heim veikir eða geta ekki verið þarna út af veðri og vindum,“ segir Karen E. Halldórsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn.

Karen segir bæinn þurfa að fara í miklar viðhalds­aðgerðir eigi bæjarskrifstofurnar að vera áfram í Fannborg.

Það fé sem fæst við söluna verði þá nýtt til að að fjármagna kaupin á nýja húsnæðinu að hluta. „Þetta er mjög verðmætt svæði. Þessi reitur er mjög miðsvæðis, með frábært útsýni og góðar samgöngur,“ segir Theodóra S. Þorsteinsdóttir, formaður bæjarráðs og oddviti Bjartrar framtíðar.

Tillagan byggir á skýrslu sem Mannvit vann fyrir Kópavogsbæ um hagkvæmustu kosti í húsnæðis­málum bæjarins. „Þetta er ódýrasti kosturinn, miðað við að selja eignina sem við erum í og byggingaréttinni,“ segir Theodóra.

Theodóra bendir á að með því að flytja bæjarskrifstofurnar skapist mikið hagræði. Núverandi húsnæði sé um 4.500 fermetrar í þremur húsum og því minnki húsnæði undir skrifstofur bæjarins verulega. „Til langs tíma litið er þetta mikil hagræðing,“ segir Theodóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×