Fótbolti

Bæjarar í stuði | Öll úrslitin í Meistaradeildinni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Thomas Müller hélt upp á 27 ára afmælið með því að skora gegn Rostov.
Thomas Müller hélt upp á 27 ára afmælið með því að skora gegn Rostov. vísir/getty
Keppni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu hófst í dag með sjö leikjum. Leik Manchester City og Borussia Mönchengladbach var frestað vegna veðurs.

Bayern München átti ekki í neinum vandræðum með að leggja Rostov að velli á Allianz Arena í D-riðli.

Bæjarar hafa farið frábærlega stað á tímabilinu og þeir léku sér að rússneska liðinu sem er að þreyta frumraun sína í Meistaradeildinni. Lokatölur 5-0, Bayern í vil.

Joshua Kimmich skoraði tvívegis og Robert Lewandowski, Thomas Müller og Juan Bernat sitt markið hver.

Í hinum leik riðilsins mættust PSV Eindhoven og Atlético Madrid í Hollandi.

Aðeins eitt mark var skorað og það gerði Saúl Níguez á markamínútunni, þeirri fertugustuogþriðju, með frábæru skoti eftir hornspyrnu.

Góð byrjun hjá Atlético sem hefur tvisvar komist í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á undanförnum þremur árum.

Í B-riðli gerði Napoli góða ferð til Kænugarðs og vann 1-2 sigur á Dynamo Kiev.

Arek Milik, maðurinn sem á að taka við keflinu af Gonzalo Higuaín, skoraði bæði mörk Napoli sem lenti undir í leiknum.

Í hinum leik B-riðils skildu Benfica og Besiktas jöfn, 1-1. Anderson Talisca, sem er á láni hjá Besiktas frá Benfica, jafnaði metin fyrir Tyrkina með frábæru skoti beint úr aukaspyrnu í uppbótartíma.

Í C-riðli rúllaði Barcelona yfir Celtic en leik Man City og Mönchengladbach var frestað eins og áður sagði.

Í A-riðli gerðu Paris Saint-Germain og Arsenal 1-1 jafntefli og það voru einnig lokatölurnar í leik Basel og Ludogorets.

A-riðill:

PSG 1-1 Arsenal

1-0 Edinson Cavani (1.), 1-1 Alexis Sánchez (77.).

Rauð spjöld: Marco Veratti, PSG (90+3.); Oliver Giroud, Arsenal (90+3.).

Basel 1-1 Ludogorets

0-1 Jonathan Cafu (45.), 1-1 Renato Steffen (80.).

B-riðill:

Benfica 1-1 Besiktas

1-0 Franco Cervi (12.), 1-1 Anderson Talisca (90+3.).

Dynamo Kiev 1-2 Napoli

1-0 Denys Garmash (26.), 1-1 Arek Milik (36.), 1-2 Milik (45+2.).

Rautt spjald: Serhiy Sydorchuk, Dynamo Kiev (68.).

C-riðill:

Barcelona 7-0 Celtic

1-0 Lionel Messi (3.), 2-0 Messi (27.), 3-0 Neymar (50.), 4-0 Andrés Iniesta (59.), 5-0 Messi (60.), 6-0 Luis Suárez (75.), 7-0 Suárez (88.).

Leik Man City og Mönchengladbach var frestað vegna veðurs.

D-riðill:

Bayern München 5-0 Rostov

1-0 Robert Lewandowski, víti (28.), 2-0 Thomas Müller (45+2.), 3-0 Joshua Kimmich (53.), 4-0 Kimmich (60.), 5-0 Juan Bernat (90.).

PSV 0-1 Atlético Madrid

0-1 Saúl Níguez (43.).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×