Innlent

Bæði ríkið og hjúkrunarheimilin líti í eigin barm

Una Sighvatsdóttir skrifar
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra
Stjórnendur hjúkrunarheimilanna í landinu boðuðu til neyðarfundar í gær vegna erfiðrar fjárhagsstöðu, en þeir áætla að allt að tvo milljarða króna til viðbótar vanti í málaflokkinn á þessu ári. Spurður hvort raunhæft sé að mæta þeirri kröfu segir heilbrigðisráðherra að skiptar skoðanir séu um forgangsröðun fjármuna inn í rekstur heilbrigðisstofnana.

„Mér er vel kunnugt um það að sum hjúkrunarheimilanna eiga í rekstrarerfiðleikum og það er full ástæða til að fara yfir þá hluti með forsvarsmönnum í velferðarþjónustu. Aðstæður þeirra eru mjög mismunandi, og sömuleiðis ríkisins líka til þess að mæta þessu."

Sammála um að hægt sé að gera betur

Kristján Þór segir óhætt að fullyrða að stjórnvöld hafi unnið að því að styrkja málaflokkinn, en hinsvegar hafi forgangsröðunin innan heilbrigðismála verið til annarra og stærri þátta en öldrunarþjónustu, til dæmis til Landspítalans. Alltaf megi deila um hvort nægilega vel sé gert.

„Skiljanlega eru skiptar skoðanir um þetta, en ég held að flestir séu á sama máli um það að það er hægt að gera betur og það er knýjandi þörf á því að mæta þessum vaxandi þætti íslenskra heilbrigðismála, sem er hjúkrunarþjónustan. En veruleikinn er sá að við munum hinsvegar aldrei byggja yfir þetta verkefni heldur þurfum við líka að horfa til annarra þátta, sem við erum farin að gera. Til dæmis með því að styrkja heimahjúkrun heilsugæslunnar."

Skorast ekki undan fundi

Hann segist ekki eiga von á öðru en að kröfu hjúkrunarheimilanna um fund með bæði heilbrigðis og fjármálaráðherra verði mætt.

„Fyrir mína parta er ég til í fund með þeim hvenær sem er, og hefur ekki staðið á mér að eiga fund með þessu ágæta fólki. Hvernig síðan áætlanagerðarframhaldið verður, það er ómögulegt að segja til um það. Því ég held að í stöðu sem að byggist upp með þessum hætti þá þurfi báðir aðilar að líta í eigin barm."


Tengdar fréttir

Hjúkrunarheimilin vantar allt að tvo milljarða króna

Þungt hljóð var í stjórnendum hjúkrunarheimilanna í landinu á neyðarfundi sem haldinn var í dag vegna erfiðrar fjárhagsstöðu heimilanna. Þeir áætla að á þessu ári vanti allt að tvo milljarða króna til viðbótar í málaflokkinn svo hægt sé að koma í veg fyrir að skerða þurfi þjónustu við íbúana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×