Körfubolti

Bæði liðin hafa unnið hvort annað sjö sinnum síðan að Teitur yfirgaf Garðabæinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Frá leikjum Stjörnunnar og Njarðvíkur.
Frá leikjum Stjörnunnar og Njarðvíkur. Vísir/Samsett/Ernir
Stjarnan tekur á móti Njarðvík í kvöld í fjórtándu umferð Domino´s deildar karla í körfubolta og verður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport.  Útsendingin hefst klukkan 19.05 og leikurinn klukkan 19.15.

Þessi lið hafa hildina háð undanfarin tvö tímabil en í bæði skiptin hefur einvígi liðanna í úrslitakeppninni farið alla leið í oddaleik.

Njarðvíkingar hafa haft betur í bæði skiptin, fyrst með sigri á heimavelli í oddaleik 2015 og svo með sigri í Ásgarði í oddaleik 2016.

Einvígi liðanna í úrslitakeppninni í fyrra, sem eru einmitt fimm síðustu leikir liðanna, var sérstakt því allir fimm leikirnir unnust á útivelli.

Njarðvíkingar hafa því unnið þrjá síðustu leiki sína í Garðabænum.

Njarðvíkurliðið hefur unnið 6 af 10 leikjum liðanna í úrslitakeppninni en Stjörnumenn hafa verið betri í deildarleikjum liðanna undanfarin tvö tímabil.

Stjarnan vann báða deildarleiki liðanna á síðasta tímabili og heimaleikinn sinn á móti Njarðvík tímabilið á undan.

Þetta þýðir að liðin hafa unnið sjö leiki hvort gegn hvoru öðru í Domino´s deildinni undanfarin tvö tímabil.  

Teitur Örlygsson þjálfaði Stjörnuna frá 2008 til 2014 en var síðan aðstoðarþjálfari Friðriks Inga Rúnarssonar hjá Njarðvík undanfarin tvö tímabil.

Það er því óhætt að segja að hann hafi séð mikið af sínum gömlu lærisveinum síðan að hann hætti að þjálfa Stjörnuliðið. Fjórtán leikir á tveimur tímabilum er þokkalegur fjöldi af leikjum á ekki lengri tíma.



Fjórtán leikir Stjörnunnar og Njarðvíkur á Íslandsmótinu frá 2014 til 2016:



2015-16    

- Úrslitakeppni -

31-03-2016 Stjarnan     75:79     Njarðvík

29-03-2016 Njarðvík     68:83     Stjarnan     

24-03-2016 Stjarnan     68:73     Njarðvík     

21-03-2016 Njarðvík     70:82     Stjarnan

18-03-2016 Stjarnan     62:65     Njarðvík

- Deild -

25-02-2016 Njarðvík     71:73     Stjarnan

26-11-2015 Stjarnan     80:70     Njarðvík

2014-15    

- Úrslitakeppni -

02-04-2015 Njarðvík     92:73     Stjarnan     

29-03-2015 Stjarnan     96:94     Njarðvík     

26-03-2015 Njarðvík     92:86     Stjarnan     

22-03-2015 Stjarnan     89:86     Njarðvík     

19-03-2015 Njarðvík     88:82     Stjarnan     

- Deild -

09-03-2015 Njarðvík     101:88     Stjarnan     

15-12-2014 Stjarnan     87:80     Njarðvík




Fleiri fréttir

Sjá meira


×