Menning

Bæði klassík og nýsköpun á tónleikum á Klaustri

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Tónlistarfólkið Guðrún Jóhanna, Hrönn Þráinsdóttir, Hildigunnur Rúnarsdóttir, Valgerður Guðnadóttir og Francisco Javier Jáuregui.
Tónlistarfólkið Guðrún Jóhanna, Hrönn Þráinsdóttir, Hildigunnur Rúnarsdóttir, Valgerður Guðnadóttir og Francisco Javier Jáuregui. Vísir/Eyþór
Hátíðin hefst á metnaðarfullan hátt þegar Benedikt Kristjánsson tenórsöngvari og Bjarni Frímann Bjarnason píanóleikari flytja ljóðaflokkinn Malarastúlkuna fögru eftir Schubert. Hann er meðal stærstu verka söngbókmenntanna og hér í íslenskri þýðingu Daníels Á Daníelssonar.“

Þannig lýsir Jóhanna Guðrún Ólafsdóttir mezzosópran upphafi Kammertónleika – sönghátíðar á Kirkjubæjarklaustri sem hefst annað kvöld og stendur fram á sunnudag.

Guðrún Jóhanna hefur búið í Madrid frá aldamótum en heldur tryggð við Ísland, meðal annars Klaustur, þar sem hún hefur haldið tónlistarhátíð síðan 2006.

„Ég tók við af Eddu Erlendsdóttur sem stofnaði hátíðina 1991 en vægi söngtónlistar hefur aukist eftir að ég tók við. Ég hef líka fengið tónskáld til að semja ný verk og í ár er það Hildigunnur Rúnarsdóttir.“ 

 

Auk Benedikts og Bjarna eru Valgerður Guðnadóttir söngleikjastjarna, Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari með Guðrúnu Jóhönnu á Klaustri. Þau flytja lög úr þekktum kvikmyndum og söngleikjum.

Einnig verður Þórdís Heiða Kristjánsdóttir tónlistarkennari með skapandi tónlistarsmiðju fyrir tveggja til tólf ára. „Mér finnst mikilvægt að börn fái að njóta tónlistar og tækifæra til að vera flytjendur á sviði og að í dagskránni sé litið til fortíðar og nútíðar til að gera hátíðina aðgengilega öllum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×