Golf

Baðst afsökunar á svívirðingum bróður síns

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Danny Willett á æfingu í gær.
Danny Willett á æfingu í gær. vísir/getty
Enski kylfingurinn Danny Willett hefur þurft að biðjast afsökunar á dónalegum orðum bróður síns í aðdraganda Ryder Cup.

Peter Willett skrifaði grein þar sem hann fer ófögrum orðum um bandaríska golfstuðningsmenn. Greinin var skrifuð í golfblað og er af harkalegri gerðinni.

Þar segir Peter að evrópska Ryder-liðið þurfi að þagga niður í þessum óþroskaða skríl sem bandarísku stuðningsmennirnir séu.

„Það þarf að rústa þessum pirrandi pöbbum með sitt Colgate-bros, Lego-hár, lyfjuðu eiginkonum og óþolandi börnum,“ skrifaði Peter Willett. Fast skotið.

Hann var þó ekki hættur að móðga Bandaríkjamennina þarna því hann kallaði þá líka feita, heimska, gráðuga og sagði að þeir kunnu sig ekki.

Danny Willett er að fara að keppa á sínum fyrsta Ryder og bróðir hans kom honum í erfiða stöðu með þessu.

„Ég biðst afsökunar á þessu. Þetta eru hvorki mínar skoðanir né liðsins,“ sagði Danny sem hefur líklega hringt í bróður sinn í kjölfarið og urðað yfir hann.

Ryder-bikarinn verður settur í kvöld í beinni útsendingu á Golfstöðinni og keppni hefst svo í hádeginu á morgun.


Tengdar fréttir

Pressan er á bandaríska liðinu í Ryder-bikarnum

Það er þjóðhátíð fram undan hjá golfáhugamönnum þar sem Ryder-bikarinn hefst á morgun. Evrópa hefur unnið þrjú síðustu mót og Bandaríkjamenn ætla að vinna bikarinn til baka á heimavelli.

Þú vinnur ekki Ryder Cup með munninum

Bandarískir fjölmiðlar hafa verið staðnir að því að gera lítið úr Ryder Cup-liði Evrópu og það fer ekki vel í Spánverjann Sergio Garcia.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×