Innlent

Báðir íhuga að skjóta Byko-máli til dómstóla

Ingvar Haraldsson skrifar
Forsvarsmenn Byko eru ósáttir við Samkeppniseftirlitið.
Forsvarsmenn Byko eru ósáttir við Samkeppniseftirlitið. vísir/ernir
viðskipti Bæði Byko og Sam­keppnis­eftirlitið íhuga að skjóta úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála um verðsamráð Byko til dómstóla.

Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri Norvikur, móðurfélags Byko, segir óboðlegt hve langan tíma rannsókn málsins hafi tekið en hún hófst árið 2010.

„Maður er með miklar efasemdir um íslenskt réttarfar og maður er með miklar efasemdir um stöðu fyrirtækja gegn þessum eftirlitsaðilum eins og t.d. Samkeppniseftirlitinu,“ segir Jón.

Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að Byko hafi brotið samkeppnislög en brotin væru ekki jafn umfangsmikil, alvarleg og kerfisbundin og Samkeppniseftirlitið hafði talið.

Því var sekt sem Samkeppniseftirlitið hafði lagt á Norvik, móðurfélag Byko, lækkuð úr 650 milljónum króna í 65 milljónir króna enda hafi upprunaleg sekt verið „úr hófi frami há“.

„Samkvæmt framansögðu telur áfrýjunarnefndin að brot áfrýjandans Byko hafi ekki verið eins og Samkeppniseftirlitið leggur til grundvallar,“ segir í úrskurði áfrýjunarnefndarinnar.

Þá voru 11 af 12 ákærðum starfsmönnum Byko og Húsasmiðjunnar sýknaðir í Héraðsdómi Reykjaness í verðsamráðsmáli í apríl. Því máli hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar Íslands.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, hafnar ásökunum um að stofnunin hafi farið offari. „Það er auðvitað staðfest þarna að brot hafi átt sér stað og brotið hafi verið gegn banni við ólögmætu samráði og að um kerfisbundin upplýsingaskipti hafi verið að ræða sem eftir atvikum hafi leitt til hærra verðs. Á móti þá kemur kannski svolítið á óvart að sektirnar hafi verið lækkaðar þrátt fyrir þessa niðurstöðu og það er auðvitað umhugsunarefni,“ segir Páll.

Þá eigi málsmeðferðartíminn sér eðlilegar skýringar. „Mál af þessu tagi bæði hér og erlendis taki talsverðan tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×