Körfubolti

Baðar sig upp úr rauðvíni | Mynd

Amar'e Stoudemire.
Amar'e Stoudemire. vísir/getty
NBA-leikmaðurinn Amar'e Stoudemire er engum líkur. Það hefur hann sannað enn eina ferðina.

Nýjasta nýtt hjá kappanum er að baða sig upp úr rauðvíni. Já, rauðvíni. Það hefur hann verið að gera núna í hálft ár.

Þessi 31 árs gamli leikmaður hefur verið í vandræðum með hnén á sér og telur að rauðvínsböðin hjálpi til. Hann náði í það minnsta að spila þrjá æfingaleiki á fjórum dögum.

„Rauðvinsböðin er mér mjög mikilvæg. Það kemur meira flæði í rauðu blóðkornin mín er ég tek þessi böð. Svo er baðið líka heitt og það mýkir skrokkinn," sagði Stoudemire.

Tímabilið sem er framundan verður þrettánda tímabil Stoudemire í deildinni en hann er á lokaári samnings síns við NY Knicks.

Hér að neðan má sjá leikmanninn í rauðvínsbaði.

Recovery Day! Red Wine Bath !! #Kinging #Blessed #Hebrews Getting ready for the eighth day feast.

A photo posted by (əˈ•mär•ray) Amar'e Stoudemire (@amareisreal) on

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×