Sport

Bað net um að giftast sér

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Beckham fór á skeljarnar í gær.
Beckham fór á skeljarnar í gær. Vísir/Getty
Útherjinn Odell Beckham er einn besti leikmaður NFL-deildarinnar en hefur átt það til að láta tilfinningarnar hlaupa með sig í gönur.

Beckham átti erfitt með að hemja skapið í fyrstu leikjum tímabilsins og pirringurinn náði hámarki í leik gegn Washington í síðasta mánuði.

Gremjuna tók Beckham út á neti sem sparkarar nota til að æfa sig á hliðarlínunni. Það gekk ekki betur en svo að hann fékk netið aftur í andlitið.

Mikið var gert úr atvikinu og skapstyggð Beckham sem svaraði þó tveimur vikum síðar með því að faðma netið eftir að hann skoraði snertimark í leikn gegn Green Bay um síðustu helgi.

Hann gekk skrefinu lengra í gær. Beckham átti risaleik gegn Baltimore Ravens og skoraði tvö snertimörk. Í fyrra skiptið lagðist Beckham undir netið og í það siðara bað það um að giftast sér.

Myndband af síðastnefnda atvikinu má sjá hér en hér er samantekt af tilþrifum Beckham í leiknum í nótt.





NFL

Tengdar fréttir

Ekkert gaman á vellinum lengur

Ein stærsta stjarnan í NFL-deildinni, Odell Beckham Jr., nýtur sín ekki lengur á vellinum og það leynir sér ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×