Lífið

Bað kærustunnar þrátt fyrir framhjáhald hennar

Jóhann Óli Eiðsson skrifar

Hvernig myndir þú bregðast við ef þú kæmist að því að manneskjan sem þú elskar væri að halda framhjá þér með einhverjum öðrum? Við þessari spurningu eru mörg möguleg svör og fjölmörg þeirra hafa verið prófuð en breskur maður ákvað að fara leið sem fáir, ef einhverjir, hafa farið áður.

Fyrir rúmum þremur vikum uppgötvaði hann að kærasta hans var með annan í takinu og í stað þess að enda sambandið á stundinni ákvað hann að biðja hana um að giftast sér. Eða svona því sem næst.

Þegar kærasta hans kom heim biðu hennar kerti, rómantísk tónlist og auðvitað kærasti hennar. Í herbergi hennar mátti finna Haribo-hlauphring og langt bréf þar sem maðurinn tjáir henni hve heitt hann elskar hana. Að auki er þar gjafabréf þar sem henni er boðið í ferð til að sjá norðurljósin. Endirinn er hins vegar talsvert annar en hún átti von á.

Það er ekki að því að spyrja að biðillinn tók herlegheitin öll upp og setti myndbandið á Youtube svo heimsbyggðin gæti notið þess með honum. Útkomuna má sjá hér að neðan. Myndbandið er rúmar sextán mínútur en fólki er ráðlagt að fylgjast í það minnsta með fyrstu og síðustu fimm mínútunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×