Lífið

Bað ekki um höfrung í Eurovision

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, sem varð í öðru sæti í Eurovision árið 2009, segist ekki hafa beðið um að hafa höfrung í atriðinu sínu heldur hafi hann komið frá tæknimönnum í Moskvu. Höfrungurinn var mikið ræddur á kaffistofum landsins eftir fyrsta flutnings lagsins. Hún ræðir höfrunginn og margt annað í nýjasta þætti Eurovísis.

„Ég hafði ekkert með hann að gera. Þetta er bara eitthvað sem einhverjir tölvuhönnuður bjuggu til sem bakgrunn á atriðið og ég sá þetta bara í fyrsta skipti eftir fyrstu æfinguna úti,“ segir Jóhanna Guðrún sem segir að mikið hafi verið hlegið að höfrungnum innan íslenska hópsins.

Höfrungurinn sveif yfir íslenska hópnum á sviðinu í Moskvu.
Það eru þó fleiri en Íslendingar sem muna eftir höfrungnum og segist Jóhanna hafa heyrt af dragkeppni í Þýskalandi þar sem höfrungurinn fékk að njóta sín þegar ein drottningin flutti Is it true. „Það var einhver sem tók Is it true og það var búið að blása upp plasthöfrung sem var hlaupið með um allt sviðið,“ segir hún.

Höfrungurinn vakti þó ekki bara gleði og hlátur heldur var eins og margt annað við atriðið mikið gagnrýndur. Jóhanna segir að hún hafi undirbúið sig vel andlega fyrir keppnina og ekki hlustað á gagnrýnisraddir. „Það er mikilvægt að velta sér ekki upp úr gagnrýni,“ segir hún.

Þannig að hún las ekki Barnalandsþræði um sig og atriðið? „Ef að maður myndi gera það, þá væri maður bara í rusli. Maður gæti ekki gert þetta vel ef maður væri búinn að vera að skoða alla hlutina sem fólk segir um mann.“

Eurovísir er vikulegt hlaðvarp á Vísi þar sem hitað verður upp fyrir Eurovision sem fram fer í Vínarborg í maí. Umsjónarmenn þáttarins eru Aðalsteinn Kjartansson og Sunna Karen Sigurþórsdóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×