Tónlist

Axl Rose gengur til liðs við AC/DC

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Axl Rose mun mæta á við með AC/DC í sumar.
Axl Rose mun mæta á við með AC/DC í sumar. Vísir/Getty
Rokkarinn og gleðipinninn Axl Rose, aðalsprauta hljómsveitarinnar Guns N' Roses, mun ganga til liðs við hina goðsagnakenndu áströlsku rokksveit AC/DC á tónleikaferðalagi þeirra um heiminn í sumar.

Ástralska sveitin hefur verið á tónleikaferðalagi en þurfti að gera hlé eftir að söngvari sveitarinnar, Brian Johnson, ákvað að hætta eftir að læknar vöruðu hann við því að hann ætti á hættu að missa heyrnina héldi hann áfram á tónleikaferðalaginu. Bon Scott, upprunalegi söngvari AC/DC, lést árið 1980.



Í yfirlýsingu frá sveitinni sagði að hún myndi virða ákvörðun Johnson um að hætta. Axl Rose mun spila á sínum fyrstu tónleikum með AC/DC þann 7. maí í Lissabon í Portúgal. Það stefnir því í umfangsmikið ár hjá Rose en stefnt er á að Guns N' Roses fari á tónleikaferðalag seinna á árinu.

Axl Rose þekkir AC/DC vel en á tónleikum sínum í London flutti hann lag AC/DC, Whole Lotta Rosie, líkt og sjá má hér að neðan.


Tengdar fréttir

Axl Rose fordæmir forseta Indónesíu

Rokksöngvarinn Axl Rose er allt annað en ánægður með stjórnvöld í Indónesíu eftir að sakborningar í smyglmáli voru líflátnir í gær

Guns N´Roses kemur saman á Coachella

Forsvarsmenn tónlistarhátíðarinnar Coachella hafa nú staðfest að rokksveitin Guns N' Roses mun koma saman í apríl og halda tónleika á hátíðinni sem fram fer í Kalifornínu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×