Golf

Axel leiðir í karlaflokki | Nína og Saga jafnar kvennamegin

Axel er að spila vel í Grafarholti.
Axel er að spila vel í Grafarholti. vísir/gsimyndir.net
Axel Bóasson, úr GK, er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Securitas-mótinu, en mótið er hluti af Eimskipsmótaröðinni. Spilað er í Grafarholti.

Axel spilaði fyrsta hringinn á 68 höggum, en í dag psilaði hann á 66 höggum og er því samtals á átta undir pari.

Næstir koma þeir Bernhand Reiter, Birgir Leifur Hafþórsson og Þórður Rafn Gissurason, allir á fimm höggum undir pari.

Í kvennaflokki eru þær Nína Björk Geirsdóttir og Saga Traustadóttir efstar og jafnar á sjö höggum yfir pari eftir fyrstu hringina tvo.

Ragnhildur Sigurðadóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir koma svo næstar á einu höggi verr eða átta höggum yfir pari.

Lokahringurinn fer fram á morgun og það er ljóst að spennan verður mikil bæði í karla- og kvennaflokki, en Vísir mun fylgjast með gangi mála á morgun.

Sigurvegarinn fær 250 þúsund krónur í verðlaunafé ef hann er atvinnukylfingur, en stigameistari mótaraðarinnar fær 500 þúsund krónur, einnig ef hann er atvinnukylfingur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×