Tónlist

Axel Flóvent gefur út fyrsta lagið í samstarfi við Sony - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Flott lag frá Axel.
Flott lag frá Axel.
Tónlistarmaðurinn Axel Flóvent gefur í dag út nýtt lag sem nefnist Your Ghost. Lagið er það sem kemur út hjá Sony Epic eftir að Axel gekk frá samning við fyrirtækið fyrr á þessu ári. Tónlistarmyndbandið er skotið hér á Íslandi.

Axel er búinn að vera á tónleikaferðalagi nánast stanslaust síðan á Iceland Airwaves hátíðinni í fyrra og spilað á mörgum af stærri tónlistarhátíðum Evrópu. Axel er nú heima að leggja loka hönd á EP plötu sem kemur út í haust og að undirbúa mikla tónleikaferð um Evrópu sem hefst í september.

Axel mun einnig spila eitthvað hér heima. Hann verður meðal annars á Innipúkanum um verslunarmannahelgina ásamt því að spila á Rokkhátíð Hafnarfjarðar og fleiri stöðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×