Handbolti

Axel búinn að ráða aðstoðarmann sinn

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jónatan í leik með Akureyri þegar hann lék með liðinu á sínum tíma.
Jónatan í leik með Akureyri þegar hann lék með liðinu á sínum tíma. vísir/vísir
Axel Stefánsson hefur valið aðstoðarmann sinn sem mun stýra íslenska landsliðinu í handbolta kvenna næstu árin.

Aðstoðarmaðurinn er Akureyringurinn, Jónatan Magnússon, en Jónatan tók í sumar við kvennaliði KA/Þórs eftir að hafa dvalið í Noregi að þjálfa undanfarin ár.

Það verða því tveir norðanmenn sem munu stýra íslenska landsliðinu í handbolta í næstu undankeppni, en Morgunblaðið greinir frá þessu.

Jónatan hefur leikið erlendis með Saint Raphael og Kristiansund, en hann þjálfaði Kristiansund einnig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×