Golf

Axel: Kylfuberinn þurfti að róa mig niður á leiðinni í umspilið

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Axel púttar á sautjándu holu í dag.
Axel púttar á sautjándu holu í dag. Vísir/Andri Marinó
„Ég er bara í skýjunum, mig er lengi búið að dreyma um að taka þátt í og vinna Íslandsmót hér á heimavelli. Loksins kom tækifærið og ég er þakklátur fyrir að hafa náð að nýta það,“ sagði Axel Bóasson, kylfingur úr GK, sáttur eftir að hafa borið sigur úr býtum gegn Haraldi Franklín Magnús í umspili upp á Íslandsmeistaratitilinn.

Axel er uppalinn hjá Golfklúbbnum Keili og sagði það vera frábært að sigra á heimavelli.

„Þetta gerist ekki sætara, ég hef verið að spila vel undanfarin ár á þessu móti og þegar ég lít til baka á helgina er ég mjög sáttur með allt nema eitt högg sem ég vildi taka til baka. Aðstæðurnar um helgina voru ekkert að trufla mig, maður kannast við hvern krók og kima hérna,“ sagði Axel léttur er hann var spurður út í mismunandi aðstæðurnar í dag.

Axel kom inn í hringinn með þriggja högga forskot sem fór um tíma upp í sjö högg.

„Ég reyndi bara að halda áfram að gera það sem ég var búinn að gera vel fyrstu þrjá dagana, svo tekur stressið við á síðustu tveimur holunum. Þegar ég lít til baka þá tók ég kannski vitlausa ákvörðun þegar ég þurfti bara par á átjándu. Ég læri af þessu, fyrir utan þessar tvær holur var spilamennskan heilt yfir góð. Ég er sigurvegarinn svo ég hlýt að hafa verið að gera eitthvað rétt,“ sagði Axel léttur sem var ekki farinn að hugsa út í sigurinn á sautjándu holu þegar hann var fimm höggum yfir.

„Ég fékk skolla á sautjándu og Haraldur fugl og ég vissi að þetta hefði brúað bilið en ég velti mér ekkert upp úr því. Kylfusveinninn fylgdist betur með stöðunni en ég en ég bjóst ekki við því að fá skramba á átjándu.“

Axel kom ósáttur inn í umspilið.

„Ég var alveg brjálaður út í sjálfan mig eftir hringinn ef ég á að vera hreinskilinn. Kylfuberinn minn sagði mér að hætta þessu bulli og einbeita mér að réttu hlutunum og það hjálpaði til, ég reyndi bara að setja þetta upp sem holukeppni sem hentar mér vel og ég spilaði þetta bara þannig.“

Axel sagðist hafa verið feginn er hann sá innáhöggið lenda inn á átjándu flöt í umspilinu í öðru höggi.

„Það var mikill léttir, ég var örlítið stressaður hvort hann færi ekki yfir grjótið í upphafshögginu en ég reyndi bara finna flötina og rúlla þessu heim. Ég einblíndi bara á að fá að klára þetta á heimavelli.“

Við tekur stutt frí hjá Axeli áður en keppni hefst á ný í atvinnumennskunni en hann á þó eftir annað mót hjá Keili.

„Ég er að fara núna í stutt frí, fjóra daga og ég get ekki beðið. Svo tekur við Hvaleyrabikarinn sem hjálpar mér að ná mér niður en vonandi gefur þetta manni aukið sjálfstraust fyrir næstu mót. Ég er búinn að vera að spila vel og að vinna mót getur bara hjálpað.“


Tengdar fréttir

Axel Íslandsmeistari í annað sinn eftir bráðabana

Axel Bóasson, kylfingur úr GK, varð í dag Íslandsmeistari í höggleik í karlaflokki á heimavelli sínum eftir bráðabana en ótrúleg fimm högga sveifla á lokaholunum sendi þetta í bráðabana þótt að Axel hafi leitt um tíma með sjö höggum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×