Lífið

Avril Lavigne og Chad Kroeger að skilja

Atli Ísleifsson skrifar
Lavigne og Kroeger höfðu verið saman frá árinu 2012.
Lavigne og Kroeger höfðu verið saman frá árinu 2012. Vísir/AFP
Kanadíska söngparið Avril Lavigne og Chad Kroeger hafa ákveðið að skilja eftir tveggja ára hjónaband.

Lavigne greindi frá þessu á Instagram-síðu sinni fyrr í kvöld. Þar segir hún að það sé með trega í hjarta sem hún greini frá því að þau Kroeger hafi ákveðið að skilja. Þau séu þó enn og ávallt verði bestu vinir og þyki enn vænt hvort um annað. Með fylgir svo mynd úr brúðkaupi þeirra í Frakklandi í júlí 2013.

Lavigne og Kroeger höfðu verið saman frá árinu 2012.

Kroeger er aðalsöngvari sveitarinnar Nickelback.


Tengdar fréttir

Avril Lavigne í tilfinningaþrungnu viðtali: Grét allan daginn

Söngkonan Avril Lavigne opnaði sig um Lyme-sjúkdóminn í þættinum Good Morning America í gær en greindist með sjúkdóminn í október á síðasta ári. Að hennar sögn gengur meðferðin betur en hún mun vera hálfnuð í henni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×