Lífið

Avril Lavigne í tilfinningaþrungnu viðtali: Grét allan daginn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Avril Lavigne átti erfitt með sig í viðtalinu.
Avril Lavigne átti erfitt með sig í viðtalinu. vísir
Söngkonan Avril Lavigne opnaði sig um Lyme-sjúkdóminn í þættinum Good Morning America í gær en greindist með sjúkdóminn í október á síðasta ári. Að hennar sögn gengur meðferðin betur en hún mun vera hálfnuð í henni.

„Mér líður mun betur og er að ná miklum framförum,“ segir Avril.

„Ég er bara virkilega þakklát að vita að ég mun ná mér 100% einn daginn.

Söngkonan sagði í viðtalinu að hún hefði verið rúmliggjandi í fimm mánuði eftir að hafa greinst með sjúkdóminn, en það sem hafi haldið í henni lífi hafi verið kveðjur frá aðdáendum.

„Ég sat uppi í rúmi og horfði á myndbönd frá aðdáendum allan daginn og grét. Ég fann fyrir mikilli væntumþykju frá öllum og ég veit að þetta virkar fáránlegt en ég fann virkilega fyrir öllum þeim stuðningi sem ég fékk,“ segir Avril í tilfinningaþrungnu viðtali. Hún bætti við að Lyme-sjúkdómurinn er ekki endalokin, það er hægt að komast yfir hann.

Bakterían Borrelia burgdorferi veldur sjúkdóminum borrelíósu eða Lyme-sjúkdómi í mönnum. Bakterían berst í menn eftir bit skógarmítils (Ixodes ricinus í Evrópu, Ixodes scapularis og pacificus í Bandaríkjunum) þegar hann nærist á blóði.

Í Bandaríkjunum er Lyme-sjúkdómurinn hvað algengastur á Nýja-Englandi, í mið-vesturríkjunum, Kaliforníu og í Oregon. Í Evrópu er sjúkdómurinn algengastur í Þýskalandi, Austurríki, Slóveníu, Svíþjóð, Finnlandi og Eystrasaltslöndunum. Sjúkdóminn er einnig að finna staðbundið í Rússlandi, Kína og Japan. Í seinni tíð hefur borið á sjúkdómnum í vaxandi mæli á Bretlandseyjum.

Fljótlega getur farið að bera á þreytu, hita, hrolli og höfuðverk ásamt vöðva- og liðaverkjum sem varað geta vikum saman. Útbreidd sýki verður þegar bakterían dreifir sér um líkamann og sest að í húð, miðtaugakerfi, hjarta eða liðum. Þetta getur gerst vikurnar eftir sýkingu ef ekki er gefin meðferð. Venjulega gengur þó sýkingin yfir eftir einhverjar vikur eða mánuði þótt engin meðferð sé veitt. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×