Innlent

Aumingjalegur þjófur brýst inn til boxara

Jakob Bjarnar skrifar
Innbrotsþjófurinn er, samkvæmt lýsingu Hilmis, Mjög grannur og aumingjalegur, snöggklipptur, tæplega 1,80 á hæð, um 30 ára og með slatta af tattoo-um á höndunum.
Innbrotsþjófurinn er, samkvæmt lýsingu Hilmis, Mjög grannur og aumingjalegur, snöggklipptur, tæplega 1,80 á hæð, um 30 ára og með slatta af tattoo-um á höndunum.
Hilmir Hjálmarsson, bakarameistari og boxari, varð fyrir því að brotist var inn í íbúð hans í gærkvöldi og var tveimur apple-tölvum stolið: „Mac book pro og Mac book air“.

Hilmir auglýsir eftir tölvum sínum á Facebooksíðu sinni, aldrei sé að vita nema þær skjóti upp kollinum á sölusíðum á netinu og jafnvel að einhver sem reki augu í skilaboðin þekki til í undirheimunum.

Þá beinir Hilmir tali sínu af innbrotsþjófinum og er umbúðalaus í tali.

„Ég get borið kennsl a manninn þar sem hann kom líklega i seinni ferð innum ólæsta hurðina sem hann hefur tekið úr lás og ég ekki tekið eftir því þegar ég kom heim! Ég gat ekki elt hann strax þar sem ég var svo heppinn að vera skipta um föt (á helvítis typpinu) eina sem hann var með þá í hendinni voru skæri sem hann notaði að ógna mér en ég náði að loka herbergishurðinni eftir að hann reyndi eða þóttist reyna komast inn um til að hægja á mér!“ segir Hilmir.

Innbrotsþjófurinn ógnaði Hilmi með skærum og var svo stálheppinn að bakarinn var ber og því ekki í vígahug.Arnold Björnsson
Og það verður að segjast að innbrotsþjófurinn hefur verið býsna brattur því Hilmir er einkaþjálfari hjá Hnefaleikamiðstöðinni og vel á sig kominn eftir því. Og hann er reiður vegna þeirra óheppilegu aðstæðna að hafa ekki verið í fötum til að takast á við manninn. Sem hann lýsir svo:

„Mjög grannur (aumingjalegur), snöggklipptur, tæplega 1,80 á hæð, um 30 ára og með slatta af tattoo-um á höndunum!“ segir Hilmar og hvetur menn til að deila færslu sinni á Facebook, ef það kynni að verða til þess að þessi þjófur komi í leitirnar: „Ef ég hefði vitað að hann væri búinn að koma og taka tölvunar okkar hefði ég ekki látið það trufla mig að ég var ber að neðan.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×