Golf

Aumingja Rickie Fowler

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þvílík mynd!!! Kim Johnson, Zach Johnson, J.B. Holmes, Erica Holmes, Jimmy Walker, Erin Walker, Jordan Spieth, Annie Verret, Justine Reed og Patrick Reed eru öll í stuði en Fowler er einmana.
Þvílík mynd!!! Kim Johnson, Zach Johnson, J.B. Holmes, Erica Holmes, Jimmy Walker, Erin Walker, Jordan Spieth, Annie Verret, Justine Reed og Patrick Reed eru öll í stuði en Fowler er einmana. vísir/getty
Vinsælasta myndin á internetinu í dag er af bandaríska kylfingnum Rickie Fowler. Óhætt er að segja að hún sé búin að sigra internetið hreinlega.

Á myndinni sjást félagar hans í bandaríska Ryder-liðinu kyssa eiginkonur sínar allt í kringum hann. Fowler er aftur á móti makalaus.

Svipurinn sem einmana Fowler setur upp í kjölfarið er auðvitað ekkert minna en stórkostlegur. Vænta má að hún verði notuð í grínmyndum á netinu næstu árin.

Fowler fékk kannski ekki koss en hann fékk nóg af kampavíni.vísir/getty

Tengdar fréttir

Bróðir minn hafði rétt fyrir sér

Bróðir kylfingsins Danny Willett gerði bróður sínum lítinn greiða er hann urðaði yfir bandaríska áhorfendur í aðdraganda Ryder-bikarsins.

Áhorfendur eiga eftir að jarða Willett

Dónaleg ummæli Peter Willett, bróður Danny Willett, eiga eftir að koma niður á Danny í Ryder-bikarnum enda má hann búast við köldum móttökum.

Bandaríkin sigurvegarar á heimavelli í Ryder-bikarnum

Bandaríska sveitin hafði betur gegn Evrópu í Ryder-bikarnum í golfi sem lauk rétt í þessu en þetta er í fyrsta skiptið síðan 2008 sem Bandaríkin hafa betur í þessu sögufræga golfmóti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×