Skoðun

Aukum eldvarnir í leiguhúsnæði

Garðar H. Guðjónsson og Bjarni kjartansson skrifar
Rannsóknir sem Capacent hefur gert fyrir Eldvarnabandalagið og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna sýna að eldvarnir eru mun lakari í leiguhúsnæði en hjá þeim sem búa í eigin húsnæði.

Þeir síðarnefndu eru mun líklegri til að hafa tilskilinn fjölda reykskynjara, slökkvitæki og annan eldvarnarbúnað og tryggja þannig öryggi sitt ef til eldsvoða kemur. Staðreyndin er jafnframt því miður sú að leiguhúsnæði er oft lakar úr garði gert með tilliti til eldvarna og á það einkum við um eldra húsnæði sem ekki er byggt samkvæmt nútímakröfum um eldvarnir. Það er því mikið fagnaðarefni að í frumvarpi húsnæðis- og félagsmálaráðherra um breytingar á húsaleigulögum skuli kveðið á um skyldu leigusala til að tryggja lágmarks eldvarnir í leiguhúsnæði.

Í ljósi niðurstaðna kannana Capacent hafði Eldvarnabandalagið ítrekað bent velferðarráðuneytinu á nauðsyn þess að setja ákvæði um eldvarnir í húsaleigulög. Það er óneitanlega ánægjulegt að ráðherra skuli hafa brugðist við með þessum hætti. Við bindum vonir við að þessi ákvæði hljóti náð fyrir augum löggjafans og verði til þess að bæta eldvarnir í leiguhúsnæði þegar fram líða stundir. Í athugasemdum við ákvæði um skyldu til eldvarna segir að gert sé ráð fyrir að lágmarki reykskynjara og slökkvitæki.

Líka á ábyrgð leigjenda

Ákvæði um lágmarks eldvarnir leysir leigjendur þó ekki undan ábyrgð á eigin eldvörnum. Lágmarksbúnaður dugir sjaldnast til að tryggja öryggi íbúanna. Eftirfarandi ætti að vera staðalbúnaður í hverri íbúð:

  • Virkir reykskynjarar, tveir eða fleiri.
  • Léttvatns- eða duftslökkvitæki við helstu flóttaleið.
  • Eldvarnateppi á vísum stað í eldhúsi.
Til upplýsingar er rétt að geta þess að Eldvarnabandalagið er samstarfsvettvangur um auknar eldvarnir á heimilum og vinnustöðum. Aðild að því eiga: Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands, Félag slökkviliðsstjóra, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Mannvirkjastofnun, Sjóvá-Almennar tryggingar hf., Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, TM hf., Vátryggingafélag Íslands hf. og Vörður tryggingar hf.

Eldvarnir eldra leiguhúsnæðis

Eldvarnabandalagið hefur jafnframt bent stjórnvöldum á að leita þurfi leiða til að auka eldvarnir í eldra leiguhúsnæði sem ekki er byggt samkvæmt nútímakröfum um eldvarnir. Þekkt er að í ákveðnum hverfum, til dæmis í höfuðborginni, er í útleigu húsnæði þar sem eldvörnum er verulega ábótavant. Það á meðal annars við um brunahólfanir og skort á viðvörun og flóttaleiðum.

Umræður um þetta efni eru á byrjunarstigi hér á landi en benda má á að yfirvöld í Ósló í Noregi hafa náð talsverðum árangri í því að efla eldvarnir í eldra húsnæði og hefur þar verið lögð sérstök áhersla á að kröfur um úrbætur séu byggðar á meðalhófi og raunsæi með tilliti til kostnaðar. Eldvarnarbandalagið hyggst fylgja þessum hugmyndum eftir og bindur vonir við að stjórnvöld sýni þeim nauðsynlegan skilning.




Skoðun

Sjá meira


×