Viðskipti innlent

Auknum hagnaði spáð hjá mörgum félögum

Sæunn Gísladóttir skrifar
Hagfræðideildin áætlar minnkandi hagnað fyrir skatt hjá öllum tryggingafélögunum, samanborið við sama ársfjórðung í fyrra.
Hagfræðideildin áætlar minnkandi hagnað fyrir skatt hjá öllum tryggingafélögunum, samanborið við sama ársfjórðung í fyrra. Vísir/GVA
Tólf uppgjör þriðja ársfjórðungs eru væntanleg á næstu dögum, fimm í dag, sex á morgun og eitt á föstudag. Ljóst er að í vikulok mun ákveðin mynd verða komin á hvernig ársfjórðungurinn var hjá helstu fyrirtækjum landsins. Hagfræðideild Landsbankans spáir svipaðri afkomu hjá Icelandair, aukningu hagnaðar hjá fjölda fyrirtækja, en minni hagnaði hjá Vodafone og tryggingafélögunum.

Hagfræðideild Landsbankans gerir ráð fyrir að rekstrarafkoma Iceland­air verði svipuð og á sama fjórðungi í fyrra og nálægt því sem spáð var í síðasta verðmati deildarinnar. Hins vegar er því spáð að neikvæð þróun ytri þátta, sér í lagi styrking krónunnar, valdi því að afkoma á fjórða ársfjórðungi verði töluvert lakari en í fyrra. Gangi spár eftir verður EBITDA ársins 214 milljónir dollara.

Deildin spáir að tekjur og hagnaður Marel muni aukast milli ára á þriðja ársfjórðungi. Á fyrsta helmingi ársins lækkuðu pro forma tekjur um 1,3 prósent og ekki er ólíklegt að slíkt hið sama gerist á þessum ársfjórðungi. Ytri vöxtur á árinu 2016 mun líklega skila 20 prósent tekjuvexti. Að mati hagfræðideildarinnar er þessu tímabili vaxtar að öllum líkindum lokið.

Spáð er lítilli aukningu í sölu hjá Vodafone á þriðja ársfjórðungi og að hagnaður tímabilsins muni aukast örlítið milli ára. Engum stórum breytingum er spáð á fjórðungnum.

Því er spáð að hagræðingar­aðgerðir Símans hafi byrjað að skila árangri á fjórðungnum en að fyrirtækið muni þó ekki ná að enda árið innan þess bils sem stjórnendur hafa gefið upp. Sala mun aukast örlítið milli ára og hagnaður einnig. Sala fyrirtækja, Talenta og Staka Automation, er meginskýring aukins hagnaðar.

Hagfræðideildin áætlar minnkandi hagnað fyrir skatt hjá öllum tryggingafélögunum, samanborið við sama ársfjórðung í fyrra.

N1 gaf út afkomuviðvörun fyrir uppgjör fjórðungsins, þar sem kom fram að rekstur félagsins hafi gengið mjög vel á fjórðungnum, sérstaklega vegna fjölgunar ferðamanna. Í ljósi þess var EBITDA félagsins hækkuð. Hagfræðideild Landsbankans telur að þrátt fyrir hækkun sé spáin enn of lág. Spáð er minni sölu en í fyrra, hærri EBITDA á fjórðungnum og meiri hagnaði fyrir tímabilið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×