Bílar

Aukin sportílasala í Evrópu

Finnur Thorlacius skrifar
Audi TT hefur selst allra sportbíla best í Evrópu á þessu ári.
Audi TT hefur selst allra sportbíla best í Evrópu á þessu ári.
Samkvæmt gögnum frá Jato Dynamics hefur sala sportbíla í Evrópu aukist um 31% það sem af er liðið ári. Það telst til mikils vaxtar á einu ári og er því sportbílaflokkurinn fyrir vikið sá sem einna hraðast vex af öllum flokkum bíla. Sportbílar teljast til yfir 250 hestafla bílum þar sem höfuðáhersla er lögð á akstursgetu.

Sportbílar hefur þó aldrei selst í gríðarmiklu magni, enda oft um dýra bíla þar að ræða. Söluhæsti einstaki sportbíll Evrópu í ár er Audi TT með 12.479 bíla selda. Í öðru sæti er Porsche 911 með 9.538 bíla og Ford Mustang er í þriðja sætinu.

Í Bretlandi er Mustang hinsvegar söluhæsti fólksbíllinn en þar hafa selst 2.317 slíkir á árinu. Listi með 10 söluhæstu sportbílum í Bretlandi má sjá hér að neðan. Í fyrra var Ford Mustang langsöluhæsti sportbíll í heiminum og sá eini sem náði yfir 100.000 seldum eintökum, en hann náði 110.000 eintaka sölu.

Sala sportbíla í Bretlandi í ár (fjöldi seldra bíla í sviga):



  1. Ford Mustang (2,317)
  2. Jaguar F-Type (1,446)
  3. BMW 6 Series (1,367)
  4. Porsche 911 (1,315)
  5. Porsche Cayman (787)
  6. Audi TT (778)
  7. Porsche Boxster (526)
  8. Mercedes SL (489)
  9. Porsche 718 (482)
  10. BMW i8 (382)





×