Innlent

Aukin mengun við Mývatn

Atli Ísleifsson skrifar
Spáð er að gasmengunin dreifist frá eldgosinu til norðurs í dag og markast áhrifasvæðið af Bárðardal í vestri og Hólasandi í austri.
Spáð er að gasmengunin dreifist frá eldgosinu til norðurs í dag og markast áhrifasvæðið af Bárðardal í vestri og Hólasandi í austri. Vísir/Egill
Mjög háir mengunartoppar hafa mælst í nótt og í morgun við Mývatni en einnig hefur mengun verið að mælast á Húsavík. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Í tilkynningunni segir að verði fólk vart við mikla mengun er það beðið að halda sig innandyra og forðast óþarfa útiveru. Til að minnka enn áhrif mengunar innandyra er ráðlagt að loka gluggum og hækka á ofnum þegar mengunin gengur yfir.

„Veðurstofan bendir á að í dag (miðvikudag) er spáð sunnanátt og dreifist þá gasmengunin frá eldgosinu til norðurs og markast áhrifasvæðið af Bárðardal í vestri og Hólasandi í austri. Suðvestlægari vindur í kvöld og færist þá svæðið heldur til austur allt austur að Þistilfirði.

Fólk á svæðinu er beðið um að fylgjast vel með mælum Umhverfisstofnunar á www.loftgaedi.is.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×