Fótbolti

Aukaspyrnumark Messi kom Barcelona áfram

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lionel Messi fagnar marki sínu vel og innilega.
Lionel Messi fagnar marki sínu vel og innilega. vísir/getty
Lionel Messi skaut Barcelona áfram í 8-liða úrslit spænsku bikarkeppninnar þegar hann skoraði þriðja mark liðsins gegn Athletic Bilbao í kvöld. Lokatölur 3-1, Barcelona í vil.

Bilbao vann fyrri leikinn 2-1 og var því í ágætis stöðu fyrir leikinn á Nývangi í kvöld.

Luis Suárez kom Barcelona yfir á 35. mínútu með sínu hundraðasta marki fyrir félagið. Úrúgvæinn þurfti aðeins 120 leiki til að skora þessi 100 mörk.

Neymar kom Börsungum í 2-0 með marki úr vítaspyrnu á 48. mínútu. Þremur mínútum síðar minnkaði Enric Saborit muninn í 2-1 og staðan því jöfn samanlagt, 3-3.

En líkt og gegn Villarreal á sunnudaginn kom Messi Barcelona til bjargar með marki beint úr aukaspyrnu á 78. mínútu.

Lokatölur 3-1, Barcelona í vil. Katalóníuliðið vann einvígið 4-3.


Tengdar fréttir

Barcelona-menn í basli í Baskalandi

Barcelona tapaði 2-1 í fyrri leik sínum á móti Athletic Bilbao í sextán liða úrslitum spænska Konungsbikarsins í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×