Lífið

Augnháradrama á samfélagsmiðlum

Guðný Hrönn skrifar
Tanja Ýr útskýrði málið fyrir fylgjendum sínum á Snapchat í vikunni.
Tanja Ýr útskýrði málið fyrir fylgjendum sínum á Snapchat í vikunni. Vísir/Pjetur
Fegurðardrottningin og bloggarinn Tanja Ýr Ástþórsdóttir hefur frá árinu 2015 selt gerviaugnhár í netverslun sinni Tanja Yr Cosmetics. Augnhárin hafa hingað til vakið mikla lukku hjá snyrtivöruaðdáendum en í vikunni kom upp neikvæð umræða um augnhárin á samfélagsmiðlum.

Í umræðunni á Twitter vildu einhverjir meina að augnhárin væru keypt á netsíðum á borð við Aliexpress en sett í umbúðir Tönju. Tanja tók sig til og ræddi málið á Snapchat á þriðjudaginn. Tanja sagði meðal annars: 

„Ég ætla ekki að fara að mjólka þessa umfjöllun eða þessa fáfræði en vil auðvitað leiðrétta eitt. Human hair-augnhárin mín eru sem sagt framleidd í sömu verksmiðju og Red Cherry og fleiri flott augnháramerki. En númerin sem eru á þessum augnhárum eru sem sagt verksmiðjunúmer, svipað og er á fötunum ykkar, bílunum ykkar, bara öllu,“ sagði Tanja og vildi leiðrétta umræðuna sem hafði myndast um að númer sem leynast undir límmiðum á umbúðunum gæfu til kynna að um augnhár frá öðru vörumerki væri að ræða.

„En ég er í smá sjokki yfir því að enginn geri sér grein fyrir því hvað ég er búin að leggja ógeðslega mikla vinnu í þetta fyrirtæki. Það er auðvitað ekkert grín að stofna svona fyrirtæki sjálfur, og svona ungur, ég var hvað, 23 ára, eða að verða 23 ára þegar ég stofnaði það. Það væru allir að stofna fyrirtæki og sitt eigið vörumerki ef það væri svona auðvelt eins og þið eruð að segja,“ útskýrði Tanja.


Tengdar fréttir

Tanja Ýr Ungfrú Ísland 2013

Tanja Ýr Ástþórsdóttir var kosin Ungfrú Ísland 2013 í fegurðarsamkeppni Íslands sem fram fór á veitingahúsinu Broadway í kvöld. Hún var einnig valin ljósmyndafyrirsæta ársins.

Fegurðar­drottning með gervi­augn­hára­línu

Keppendur í Ungfrú Svíþjóð riðu á vaðið og flögguðu spánnýjum augnhárum sem Tanja Ýr hefur látið framleiða og myndar nú heila línu gerviaugnhára. Augnhárin eru væntanleg í sölu hérlendis í næstu viku segir Tanja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×