Tíska og hönnun

Auglýsir töskur fyrir Louis Vuitton

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan Michelle Williams hefur tekið höndum saman við Louis Vuitton á ný og eru myndir úr auglýsingaherferðinni komnar á netið.

Ljósmyndarinn Peter Lindbergh tók myndirnar, Sam McKnight sá um hár Michelle og Stéphane Marais um förðun. Carine Roitfeld stíliseraði myndirnar.

Herferðin fer á fullt í Bandaríkjunum á sunnudag en sumar töskurnar sem sjást á myndunum verða ekki falar í verslunum fyrr en í júlí.

Með Alma Epi-tösku.
Stórglæsileg.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×