Viðskipti innlent

Auglýsingatekjur RÚV rúmir tveir milljarðar

Benedikt Bóas skrifar
Húsnæði Ríkisútvarpsins við Efstaleiti í Reykjavík.
Húsnæði Ríkisútvarpsins við Efstaleiti í Reykjavík. vísir/gva
Aðkeypt þjónusta, launa- og starfsmannatengdur kostnaður vegna dagskrár RÚV nam 2,6 milljörðum króna á síðasta ári. Annar beinn kostnaður vegna dagskrár nam 243 milljónum. Réttindagreiðslur vegna dagskrár námu tæpum milljarði. Þetta kemur fram í ársreikningi RÚV sem birtur var í gær. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 95 milljónum fyrir skatta sem það mun ekki greiða skatta af vegna uppsafnaðs taps.

RÚV hagnaðist um 1.429 milljónir króna eftir skatta í fyrra en afkoman skýrist að mestu af einskiptishagnaði vegna sölu á byggingarrétti á lóð við Efstaleiti 1 sem nam 1.535 milljónum króna. Eiginfjárhlutfall RÚV er nú 23,8 prósent en var 6,2 prósent í lok árs 2015. Í tilkynningu RÚV til Kauphallar Íslands kemur fram að breytingar í rekstri hafi skilað umtalsverðri hagræðingu.

Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri
Tekjur af auglýsingum námu 2,2 milljörðum en í ársskýrslu fjölmiðlanefndarinnar kemur fram að velta á innlendum auglýsingamarkaði nemi um tíu milljörðum króna. RÚV fær fjóra milljarða ár hvert í formi útvarpsgjalds. Það er 16.800 krónur í ár og hækkaði um 400 krónur á milli ára en það er lagt á alla sem eru 16-70 ára. Í ræðu Illuga Gunnarssonar, þáverandi mennta- og menningarmálaráðherra, í fyrra kom fram að engin ríkisútvörp á Norðurlöndum væru á auglýsingamarkaði. Einkareknir fjölmiðlar hafa kallað eftir því að RÚV dragi sig út af auglýsingamarkaði.

Heildarlaun sem RÚV greiddi voru um tveir milljarðar og voru 258 heildarstöðugildi. Launatengd gjöld voru 216 milljónir. Laun og þóknanir Magnúsar Geirs Þórðarsonar útvarpsstjóra námu 17,2 milljónum króna. Laun til æðstu stjórnenda fyrir utan Magnús námu 119,6 milljónum og stjórnarlaun námu 11,8 milljónum.

Í ársreikningnum kemur fram að viðræður standi yfir milli RÚV og Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins um skilmálabreytingu á láni. Fyrir liggur að RÚV mun þegar fram líða stundir ekki geta staðið undir greiðslum afborgana af láninu miðað við óbreytt vaxtakjör og greiðsluskilmála. Samkomulag náðist um að fresta afborgunarhluta greiðslu sem var á gjalddaga 1. október í fyrra þar til viðræðum lýkur. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×