Lífið

Auglýsing um andlát Valdimars var stórlega ýkt

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Valdimar Guðmundsson
Valdimar Guðmundsson
Í auglýsingahléi í Eurovision í kvöld kom upp auglýsing þar sem minningartónleikar Valdimars voru auglýsir. Margir ráku upp stór augu, þeirra á meðal fólk í Bjútí tips hópnum, enda stóðu flestir í þeirri trú að Valdimar væri sprelllifandi.

Sú er líka raunin. Ástæða auglýsingarinnar er að Valdimar er maraþonmaður Íslandsbanka þetta árið. Valdimar stefnir að því að ljúka tíu kílómetrum í Reykjavíkurmaraþoninu í haust.

Sjá einnig:„Nú verður slagurinn tekinn“

„Mig dreymdi að ég væri dáinn og það var sparkið sem ég þurfti til að byrja að gera eitthvað í mínum málum og minni heilsu,“ segir Valdimar í kynningarmyndbandi. Valdimar hefur þjáðst af kæfisvefni og glímt við ofþynd í lengri tíma.

„Ég hleyp kannski ekki allan tímann. Ég geng alveg eitthvað,“ segir hann. Hægt er að fylgjast með æfingum hans og áskoruninni inn á vefsíðunni minaskorun.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×