Fótbolti

Auðvitað eru menn svekktir

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen er einn þeirra sem hafa oft sagst svekktir með að spila ekki en bera virðingu fyrir ákvörðunum þjálfaranna.
Eiður Smári Guðjohnsen er einn þeirra sem hafa oft sagst svekktir með að spila ekki en bera virðingu fyrir ákvörðunum þjálfaranna. vísir/Vilhelm
Aron Einar Gunnarsson segir að eðli málsins samkvæmt séu þeir leikmenn sem fá lítið eða ekkert að spila með landsliðinu á Evrópumótinu í Frakklandi svekktir. Annað væri óeðlilegt. Allir séu hins vegar að vinna að sama markmiði og stemningin í hópnum góð.

„Þetta er hópur 23 leikmanna. Sumir eru ekki að spila, auðvitað eru menn svekktir. Ef ég væri ekki að spila þá væri ég svekktur,“ sagði Aron Einar á fundi með íslenskum blaðamönnum í dag. „Aftur á móti er þetta þannig hópur að það eru allir á sömu bylgjulengd, að róa í sömu átt.“

Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfarar Íslands, hafa stillt upp sama byrjunarliði í öllum fjórum leikjum Íslands til þessa. Sex leikmenn hafa komið inn af bekknum og fengið einhverjar mínútur og aðrir ekkert spilað. Sama er uppi á teningnum hjá öðrum þjóðum enda vitað mál að ekki myndu allir spila á mótinu, þjálfarar velja sitt sterkasta lið hverju sinni. 

„Þetta er þannig hópur. Þótt menn séu ósáttir og spili ekki, það er alveg eðlilegt. Aftur á móti kunna allir 23 að meta hvern annan. Ég held að það sé eitthvað sem við töpum aldrei,“ sagði Aron Einar. Hann segir mikilvægi þeirra sem minna spila jafnmikið og þeirra sem spili.

„Það er keyrsla á æfingum, menn verða pirraðir hver á öðrum og tækla hvern annan. En það er allt í góðu. Þetta sýnir keppnisskap og þannig verður þessi hópur alltaf,“ segir landsliðsfyrirliðinn.

„Vonandi sér kynslóðin sem kemur til með að taka við af okkur hvað við erum búnir að leggja inn í þetta og hvernig viðhorf við Íslendingar þurfum að hafa til að mynda fótboltalið.“

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook , Twitter og Snapchat (sport365).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×