Enski boltinn

Auðvelt hjá Stoke gegn Rochdale

Bojan fagnar marki sínu í kvöld.
Bojan fagnar marki sínu í kvöld. vísir/getty
Stoke er komið áfram í ensku bikarkeppninni eftir sigur, 1-4, á neðrideildarliði Rochdale í kvöld.

Stoke komst yfir strax á 4. mínútu er Bojan Krkic skoraði og þannig stóðu leikar í hálfleik.

Stoke skoraði tvö mörk snemma í síðari hálfleik og gekk frá leiknum. Stephen Ireland og Viktor Moses á skotskónum.

Það var svo Rhys Bennett sem klóraði í bakkann fyrir sitt lið í lokin en Jon Walters skoraði fjórða markið áður en yfir lauk.

Stoke spilar gegn Blackburn á útivelli í næstu umferð keppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×