Handbolti

Auðvelt hjá Barcelona sem flaug í undanúrslit

Anton Ingi Leifsson skrifar
Guðjón skoraði fimm í sigri Barcelona.
Guðjón skoraði fimm í sigri Barcelona. vísir/getty
Barcelona rúllaði yfir HC Prvo Zagreb í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta í dag. Lokatölur urðu 43-21.

Barcelona byrjaði af miklum krafti og staðan í hálfleik var 23-10. Flestir bjuggust við mun jafnari leik, en Barcelona vann fyrri leik liðanna með tveimur mörkum, 25-23.

Þeir stigu hins vegar bara á bensíngjöfina í síðari hálfleik og unnu að lokum 43-21. Barcelona fer því samanlagt áfram með 24 marka mun.

Barcelona er því komið í undanúrslit keppninnar, en Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk fyrir Barcelona. Kiri Lazarov var markahæstur með níu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×