Fótbolti

Auðvelt hjá Arsenal í Tyrklandi | Sjáðu mörkin

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Aaron Ramsey var Tyrkjunum erfiður.
Aaron Ramsey var Tyrkjunum erfiður. vísir/getty
Arsenal gerði sitt í lokaumferð D-riðils í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í kvöld og vann Galatasaray örugglega á útivelli, 4-1. Það dugði þó ekki til því Dortmund fékk stig í sínum leik og vinnur riðilinn á markatölu.

Lukas Podolski minnti heldur betur á sig, en Þjóðverjinn skoraði fyrsta og fjórða mark Arsenal. Það fyrra skoraði hann með föstu skoti í samskeytin nær úr þröngu færi. Afskaplega fallegt mark.

En þá var komið að Walesverjanum Aaron Ramsey sem skoraði annað og þriðja mark liðsins. Það fyrra gerði hann með snyrtilegri laumu, en það síðara með stórkostlegu skoti fyrir utan teig. Algjörlega bilað mark.

Tyrkirnir minnkuðu muninn undir lokin, en það gerði hollenski landsliðsmaðurinn Wesley Sneijder. Podolski tryggði svo Arsenal þriggja marka sigur, 4-1.

Arsenal hefði þurft að vinna leikinn með sex marka mun fyrst Dortmund náði stigi, en Skytturnar verða sætta sig við annað sætið.

Lukas Podolski kemur Arsenal í 0-1: Aaron Ramsey kemur Arsenal í 0-2: Aaron Ramsey með glæsilegt mark, 0-3: Wesley Sneijder skorar úr aukaspyrnu, 1-3: Lukas Podolski innsiglar sigurinn, 1-4:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×