Menning

Auður Ava, Rax og Hildur Knútsdóttir handhafar Íslensku bókmenntaverðlaunanna

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ragnar Axelsson, Auður Ava Ólafsdóttir og Hildur Knútsdóttir eru handhafar Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Ragnar Axelsson, Auður Ava Ólafsdóttir og Hildur Knútsdóttir eru handhafar Íslensku bókmenntaverðlaunanna. vísir
Þau Auður Ava Ólafsdóttir, Hildur Knútsdóttir og Ragnar Axelsson hlutu í kvöld Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir árið 2016 en það var Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sem afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum sem hófst klukkan 20.

Auður Ava hlaut verðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir bók sína Ör sem gefin var út af bókaútgáfunni Benedikt. Bókin Vetrarhörkur eftir Hildi hlaut verðlaunin í flokki barna-og ungmennabóka og bók Rax, Andlit norðursins, fór með sigur af hólmi í flokki fræðirita og bóka almenns eðlis.

Íslensku bókmenntaverðlaunin nema einni milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk og eru kostuð af Félagi íslenskra bókaútgefenda. Auk peningaverðlauna fá verðlaunahafar afhent skrautrituð verðlaunaskjöl og verðlaunagripi sem hannaðir eru af Jóni Snorra Sigurðssyni á gullsmíðaverkstæði Jens; opin bók á granítstöpli með nafni verðlaunahöfundar og bókar hans.

Auður Ava og Guðni Th.vísir/anton brink
Fjögurra manna lokadómnefnd valdi verkin úr hópi fimmtán bóka sem tilnefndar voru til verðlaunanna í desember á síðasta ári en fimm bækur voru tilnefndar í hverjum flokki. Lokadómnefnd skipuðu Knútur Hafsteinsson, Árni Árnason, Aðalsteinn Ingólfsson og Árni Sigurjónsson, sem var jafnframt var formaður nefndarinnar.

Eftirfarandi bækur voru tilnefndar til verðlauna í flokki fræðibóka og rita almenns efnis:

Árni Heimir Ingólfsson: Saga tónlistarinnar

Bergsveinn Birgisson: Leitin að svarta víkingnum

Guðrún Ingólfsdóttir: Á hverju liggja ekki vorar göfugu kellíngar

Ragnar Axelsson: Andlit norðursins

Viðar Hreinsson: Jón lærði og náttúrur náttúrunnar

Eftirfarandi bækur voru tilnefndar til verðlauna í flokki barna- og ungmennabóka:

Hildur Knútsdóttir: Vetrarhörkur

Hildur Knútsdóttir og Þórdís Gísladóttir: Doddi: bók sannleikans

Margrét Tryggvadóttir og Linda Ólafsdóttir: Íslandsbók barnanna

Þórhallur Arnórsson og Jón Páll Halldórsson: Vargöld: fyrsta bók

Ævar Þór Benediktsson: Vélmennaárásin

Eftirfarandi bækur voru tilnefndar til verðlauna í flokki fagurbókmennta:

Auður Ava Ólafsdóttir: Ör

Guðrún Eva Mínervudóttir: Skegg Raspútíns

Sigurður Pálsson: Ljóð muna rödd

Sjón: Ég er sofandi hurð (Co Dex 1962)

Steinar Bragi: Allt fer

Ragnar Axelsson.vísir/anton brink
Íslensku bókmenntaverðlaununum var komið á fót árið 1989 í tilefni af 100 ára afmæli Félags íslenskra bókaútgefenda sem stofnað var í Reykjavík í janúar 1889. Fyrsta árið var verðlaununum ekki skipt í flokka en tilnefndar alls 10 bækur. Fyrsti verðlaunahafinn var ljóðskáldið Stefán Hörður Grímsson sem hlaut verðlaunin fyrir bókina Yfir heiðan morgun.

Árið eftir var tilhögun verðlaunanna breytt þannig að tilnefndar bækur skiptust í tvo flokka, fagurbækur annars vegar og fræðibækur og rit almenns efnis hins vegar. Þannig hafa verðlaunin haldist óbreytt þar til ársins 2013 að við bætist flokkur barna- og ungmennabóka.

Tilnefningar eru kynntar þann 1. desember ár hvert og verðlaunin síðan veitt síðla janúar eða í upphafi febrúar. Óháðar tilnefninganefndir, skipaðar þremur dómbærum fulltrúum hver, velja þær fimm bækur í hverjum flokki sem helst þykja skara fram úr. Lokaval er í höndum formanna nefndanna þriggja og forsetaskipaðs dómnefndarformanns. Velja þeir eina bók úr hverjum flokki þannig að þrjár bækur hljóta á endanum Íslensku bókmenntaverðlaunin.

Forseti Íslands afhendir verðlaunin á Bessastöðum við hátíðlega athöfn. Allir sem gefa út bækur á Íslandi geta lagt fram bækur til verðlaunanna sama ár og þær koma út, hvort sem þeir eru í Félagi íslenskra bókaútgefenda eða ekki, og greiða fyrir það hóflegt gjald. Verðlaunaupphæðin er ein milljón króna fyrir höfund hvers verðlaunaverks.

Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2015 hlutu þeir Einar Már Guðmundsson fyrir Hundadaga, Gunnar Þór Bjarnason fyrir Þegar siðmenningin fór fjandans til og Gunnar Helgason fyrir Mamma klikk!

Þeir sem áður hafa hlotið Íslensku bókmenntaverðlaunin eru:

1989 Stefán Hörður Grímsson

1990 Fríða Á. Sigurðardóttir og Hörður Ágústsson

1991 Guðbergur Bergsson og Guðjón Friðriksson

1992 Þorsteinn frá Hamri og Vésteinn Ólason, Guðrún Nordal, Sverrir Tómasson

1993 Hannes Pétursson og Jón G. Friðjónsson

1994 Vigdís Grímsdóttir og Silja Aðalsteinsdóttir

1995 Steinunn Sigurðardóttir og Þór Whitehead

1996 Böðvar Guðmundsson og Þorsteinn Gylfason

1997 Guðbergur Bergsson og Guðjón Friðriksson

1998 Hörður Ágústsson og Thor Vilhjálmsson

1999 Andri Snær Magnason og Páll Valsson

2000 Gyrðir Elíasson og Guðmundur Páll Ólafsson

2001 Hallgrímur Helgason og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir

2002 Ingibjörg Haraldsdóttir og Pétur M. Jónasson, Páll Hersteinsson

2003 Ólafur Gunnarsson og Guðjón Friðriksson

2004 Auður Jónsdóttir og Halldór Guðmundsson

2005 Jón Kalman Stefánsson og Kristín G. Guðnadóttir, Gylfi Gíslason, Arthur C. Danto, Matthías Jóhannessen, Silja Aðalsteinsdóttir, Eiríkur Þorláksson

2006 Ólafur Jóhann Ólafsson og Andri Snær Magnason

2007 Sigurður Pálsson og Þorsteinn Þorsteinsson

2008 Einar Kárason og Þorvaldur Kristinsson

2009 Guðmundur Óskarsson og Helgi Björnsson

2010 Gerður Kristný og Helgi Hallgrímsson

2011 Guðrún Eva Mínervudóttir og Páll Björnsson

2012 Eiríkur Örn Norðdahl og Gunnar F. Guðmundsson

2013 Sjón, Sigurjón B. Sigurðsson, Guðbjörg Kristjánsdóttir og Andri Snær Magnason

2014 Ófeigur Sigurðsson, Snorri Baldursson og Bryndís Björgvinsdóttir

2015 Einar Már Guðmundsson, Gunnar Þór Bjarnason og Gunnar Helgason






Fleiri fréttir

Sjá meira


×