Bílar

Audi Q3 verður grænni

Finnur Thorlacius skrifar
Audi Q3.
Audi Q3.
Mest seldi bíll í Evrópu í lúxusjeppaflokki er Audi Q3 og Audi ætlar að halda þeim bíl þar með því að bjóða eyðslugrennri vélarkosti í bílnum vinsæla. Samkeppnin frá bílunum BMW X1 og Mercedes Benz GLA er hörð.

Engu að síður jókst sala Audi Q3 um 60% í 145.000 bíla á heimsvísu á síðasta ári og um 30% á fyrstu 10 mánuðum þessa árs. Er það til vitnis um miklar vinsældir lúxusjepplinga um þessar mundir. Audi ætlar að bjóða vélar í Q3 sem slökkva á helmingi strokka þeirra ef ekki er þörf á öllu afli þeirra. Munu slíkar vélar verða í boði þegar bíllinn verður uppfærður á næstunni, mitt á milli nýrra kynslóða hans.

Audi gerir ráð fyrir enn meiri sölu Audi Q3 á næsta ári og að 40.000 fleiri slíkir bílar muni seljast árið 2015 en í ár. Ekki síst er það vegna stóraukinnar framleiðslu á bílnum í Kína. Spáð er að sala í lúxusjeppaflokki muni nema 1,1 milljón bíla í heiminum árið 2019, en sala í þessum bílaflokki nam einungis 220.000 bílum árið 2011.

Þýsku framleiðendurnir hafa nánast átt þennan flokk hingað til, en nú er von á þessháttar bílum frá bílaframleiðendunum Jaguar, Infinity, Alfa Romeo og Cadillac. Ekki mun því samkeppnin minnka hjá þeim þýsku þó svo plássið sé yfrið ef spár fyrir komandi ár reynast réttar. 






×