Viðskipti erlent

Auði gríðarlega misskipt í Bretlandi

Sæunn Gísladóttir skrifar
Tíu ríkustu prósent íbúa landsins eiga yfir helminginn af heildarauði Bretlands.
Tíu ríkustu prósent íbúa landsins eiga yfir helminginn af heildarauði Bretlands.
Ef marka má nýja skýrslu Oxfam er Bretland á meðal þeirra vestrænu ríkja þar sem eignaskipting er einna ójöfnust.

Skýrslan sýnir að eitt ríkasta prósent íbúa Bretlands á tuttugu sinnum meira en tuttugu fátækustu prósent íbúanna. Þannig eiga 634 þúsund Bretar 20 sinnum meira en þrettán milljónir Breta.

Forsvarsmenn Oxfam biðla nú til forsætisráðherra Bretlands, Ther­esu May, að vinna í því að minnka eignamuninn milli hópanna. Í skýrslunni, sem byggð er á tölum frá Credit Suisse, kemur fram að tíu ríkustu prósent íbúa landsins eiga yfir helminginn af heildarauði Bretlands, þar af á ríkasta prósentið nærri því fjórðung auðs landsins, eða 23 prósent. Á sama tíma eiga tuttugu fátækustu prósent íbúa landsins einungis 0,8 prósent auðsins.

BBC greinir frá því að forsvarsmenn Oxfam leggi fram eftirfarandi tillögur til að leiðrétta skiptingu auðsins: Að auka ásýnd starfsmanna fyrir stjórnum fyrirtækja, skapa hvata hjá fyrirtækjum til að auka aðgang starfsmanna að starfsþjálfun og menntun, að innleiða reglur um að hæst launaði starfsmaður fyrirtækis geti ekki verið með hærri en tuttuguföld laun lægst launaða starfsmannsins, taka á skattsvikum fyrirtækja og notkun þeirra á skattaparadísum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×