Bílar

Audi A3 e-tron ódýrari hér en í Bandaríkjunum

Finnur Thorlacius skrifar
Audi A3 e-tron
Audi A3 e-tron
Algengt er að bílar frá Evrópu séu ódýrari í Bandaríkjunum en í upprunalandinu og hefur mörgum þótt það súr staðreynd. Þó eru dæmi um það þveröfuga og það meira að segja í samaburði hérlendis. Eitt dæmi um það er Audi A3 e-tron rafmagnsbíllinn sem kostar 40.000 dollara vestanhafs, eða 4,5 milljónir, en hann kostar 4,1 milljón króna í Heklu.

Þessu má að einhverju leiti þakka hagstæðri skattlagningu á rafmagnsbílum og tengiltvinnbílum hér á landi nú, en engin vörugjöld né virðisaukaskattur er af slíkum bílum upp að 6 milljón króna verði slíkra bíla.

Eitt kemur þó á móti í Bandaríkjunum, en kaupendur slíkra bíla njóta endurgreiðslu frá hinu opinbera og eru þær þó mismunandi á milli ríkja, minna af tengiltvinnbílum þó en af hreinræktuðum rafmagnsbílum. Margir kaupendur nýrra bíla hafa áttað sig á þessu hérlendis, enda er góð sala í tengiltvinnbílum og rafmagnsbílum nú. Er það vel í þeirri viðleitni að ná niður útblástri bílaflotans hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×