Lífið

Auddi gekk inn á allsberan Jón Jónsson

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Í nýrri stiklu fyrir hæfileikaþáttinn Ísland Got Talent sýnir Auðunn Blöndal, betur þekktur sem Auddi, áhorfendum heima í stofu stemninguna baksviðs við gerð þáttanna. 

Hann heilsar upp á dómarana, fyrst Þorgerði Katrínu, síðan Selmu Björnsdóttur, því næst Bubba Morthens og loks Jón Jónsson.

Jón virðist hins vegar ekki hafa vitað af þessari heimsókn og gengur Auddi inn á hann allsberan.

Ísland Got Talent hefst á Stöð 2 í janúar og verður þessi önnur sería með svipuðu sniði og sú fyrsta. Þó er gylltur hnappur í spilunum núna en ef dómarar ýta á hann kemst keppandi rakleiðis áfram í beina útsendingu.

Dómnefndin góða: Þorgerður Katrín, Bubbi, Selma og Jón.

Tengdar fréttir

Selma flaug frá Stokkhólmi

Upptökum er lokið á sjónvarpsþættinum Ísland Got Talent sem verður sýndur á Stöð 2 í lok janúar á næsta ári.

Gullhnappur notaður í Talent

Tökur á fyrstu tveim þáttunum í Ísland Got Talent fóru fram um síðustu helgi. Upptökurnar eru mjög viðamiklar og fara fram í 4.000 fermetra rými í Korputorgi. 160 atriði verða kynnt og nítján tökuvélar notaðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×