Bílar

Atvinnutækjasýning hjá Brimborg

Finnur Thorlacius skrifar
Tveir stórir frá Volvo.
Tveir stórir frá Volvo.
Í dag milli kl. 12-16 verður stórsýning hjá Volvo atvinnutækjum á atvinnutækjaverkstæði Brimborgar við Bíldshöfða 6, 110 Reykjavík.

Á sýningunni verða Volvo vörubílar, Volvo rútur, Volvo vinnuvélar og Volvo Penta bátavélar. Þar að auki verður hægt að skoða lagfært og endurhannað verkstæði Volvo atvinnutækja hjá Brimborg.  Einnig verður hægt að reynsluaka Volvo FH 6x4T 500 hestafla dráttarbíl með I-Shift Dual Clutch gírkassa og Volvo Dynamic Steering.

Flaggskip Volvo Bus – Volvo 9900 rúta

Meðal þeirra tækja sem verða á sýningunni er stórglæsileg VIP 48 sæta Volvo 9900 rúta, Volvo FH16 vörubíll, Volvo FMX vörubíll, Volvo FH vörubíll og Volvo EC 140 DL beltavél svo eitthvað sé nefnt.

Reynsluakstur í boði

Brimborg hvetur áhugasama til að koma og prófa Volvo FH 6x4T 500 hestafla dráttarbíl með I-Shift Dual Clutch gírkassa og Volvo Dynamic Steering milli kl. 12 og 16 í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×