Innlent

Atvinnuleysi ekki minna í sjö ár

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Hlutfall atvinnulausra í Bretlandi er nú 5,6 prósent.
Hlutfall atvinnulausra í Bretlandi er nú 5,6 prósent. vísir/epa
Atvinnuleysi í Bretlandi hefur ekki verið minna síðan í júlí 2008, samkvæmt nýjum tölum sem gefnar voru út í dag. Frá nóvember fram í febrúarl fækkaði atvinnulausum um 76 þúsund og er hlutfall atvinnulausra nú 5,6 prósent.

Atvinnuleysi í landinu er því 1,3 prósentum minna en á sama tíma á síðasta ári og er fjöldi atvinnulausra 1,84 milljón talsins. Er þetta í samræmi við spár markaðsaðila.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×