Bílar

Atvinnubílar Öskju á hringferð um landið

Finnur Thorlacius skrifar
Veglegir trukkar frá Mercedes Bnez.
Veglegir trukkar frá Mercedes Bnez.
Starfsmenn Bílaumboðsins Öskju og Kapp ehf. eru á hringferð um landið dagana 27. apríl til 5. maí. ,,Við ætlum að koma víða við á landsbyggðinni og sýna sendi- og vörubifreiðar frá Mercedes-Benz ásamt vörukassa og vagni frá Schmitz Cargobull.

Með í för eru Mercedes-Benz Citan, Vito, Sprinter, Atego ásamt Actros dráttarbíl. Við ætlum að bjóða upp á reynsluakstur eftir því sem sem mögulegt er. Það er mikil tilhlökkun í okkur enda gaman að aka hringinn og hitta viðskiptavini á landsbyggðinni.

Við erum líka ákaflega stoltir að geta sýnt þennan flotta atvinnubílaflota Mercedes-Benz,” segir Páll Halldór Halldórsson hjá atvinnubíladeild Öskju. Ferðin hófst á Selfossi í gær og endar í Reykjavík 5. maí. í nýjum og glæsilegum húsakynnum söludeildar atvinnubíla Öskju sem er nýflutt á Fossháls 1. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×