Lífið

Áttunda barn Mick Jagger komið í heiminn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jagger hefur verið lengi í bransanum.
Jagger hefur verið lengi í bransanum. vísir/getty
Sir Mick Jagger, söngvari hljómsveitarinnar Rolling Stones, er orðinn faðir í áttunda sinn. Kærastan hans Melanie Hamrick fæddi barnið í dag en þetta staðfestir talsmaður söngvarans í samtali við Daily Mail.

Jagger er 73 ára og Hamrick 29 ára. Það er því töluverður aldursmunur á þeim en söngvarinn á fyrir sjö börn á aldrinum 17-45 ára. 

Hann varð langafi á síðasta ári. Jagger og Hamrick byrjuðu saman árið 2014 eftir að L'Wren Scott, eiginkona Jagger til 13 ára, svipti sig lífi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×